Sunnudagur, 22. janúar 2012
Horfði á Everything must go um daginn og get ekki hætt að hugsa um hana. Fjallar um mann sem er alki, vinnur sem sölustjóri hjá stóru fyrirtæki. Er kærður fyrir eitthvað... sennilega kynferðislega áreitni. Hann man ekki hvað gerðist þetta kvöld og veit ekki hvort hann er sekur eða saklaus. Er rekinn.
Daginn sem hann er rekinn fer hann heim og sér að eiginkonan hefur hent öllu dótinu hans á lóðina fyrir framan húsið.
Ég skil ekki hvernig þessi mynd gat farið framhjá mér. Ég er mikill Will Ferrell aðdáandi en ég er ekki viss um að þetta sé mynd sem fólk kærir sig almennt um að sjá.
Gæti ég selt allt dótið mitt og byrjað uppá nýtt? Þá meina ég allt dótið mitt. Já ég gæti það örugglega - en það þyrfti eitthvað mikið að koma til. Að flytja á milli landa hefur kennt mér að dótið mitt skiptir mig miklu máli. Ekki húsgögnin og það (enda er ég búin að selja 99% af öllum húsgögnunum). Það er allt hitt. Dótið mitt er tenging mín við það líf sem ég hef lifað fram til þessa. Þetta eru minningar.
Gætir þú selt allt dótið þitt?