Þriðjudagur, 03. janúar 2012

Síðasta haust fór ég til Kaupmannahafnar að hitta Elínu vinkonu og vinkonu hennar Jolene. Þessi heimsókn var ekkert minna en frábært. Ég var með sígaunaspilin með mér - grín spáspil og um kvöldið borðuðum við góðan mat, drukkum hvítvín og spáðum í spilin þangað til við vorum orðnar svo fallegar að við vorum byrjaðar að hlusta á Dolly Parton á Youtube. Þá fór að síga á seinni hlutann hjá okkur þó nýr dagur væri að renna upp.
Þetta var svo skemmtilegt kvöld og þar sem það er á dagskrá að fara í nokkrar svipaðar ferðir til Kaupmannahafnar árið 2012 ákvað ég að gefa Elínu og Jolene áramótagjöf.
Það lá beint við hvað ég myndi gefa Jolene - því við veltumst um úr hlátri þegar hún fór að túlka spilin sem hún lagði fyrir okkur, hún er natural - svo hún fékk sígauna-spá-spila-stokk. Það var ekki erfitt að ákveða hvað ég myndi gefa Elínu heldur, því ég vissi að hana langaði í banner til að hengja upp í stofunni og hún sýndi mér mynd af honum á netinu. Ég sá ekki að það væri hægt að kaupa hann þannig að ég bjó einn til.
Jesper fylgdist með mér eins og hann væri að horfa á náttúrulífsmynd, þegar ég var að skera út stafina og þræða þá upp á band. Dodda fannst þetta merkilegt verkefni og fylgdist jafn spenntur með - spurði hvort ég myndi búa til svona banner fyrir mig líka. Ég útskýrði fyrir Dodda að það væri ekki alveg viðeigandi að hengja svona banner upp í stofunni okkar Jespers, þetta væri meira svona "single-woman-in-the-big-city" thing. Ég mun samt pottþétt búa til annan og hengja upp þegar Elín og Jolene koma hingað í sveitina að heimsækja mig sem verður vonandi í sumar.
Dodda langar í banner í herbergið sitt en er enn að ákveða hvað á að standa á honum. Það verður fróðlegt að sjá hvað hann biður um.
Á gamlársdag var ég orðin svo óþolinmóð að um leið að ég sá sms frá Elínu þar sem hún var að spyrja hvort þær mættu opna pakkann eftir mat, sendi ég svar um hæl: OPNA NÚNA! Stuttu seinna póstaði Elín mynd af dýrðinni á facebook.
Ég er ekkert smá stolt af því hvað þetta tókst vel - og get hreinlega ekki beðið eftir næstu heimsókn í borgina!