Mánudagur, 02. janúar 2012
Strax 1. janúar varð allt útlit fyrir að árið 2012 yrði viðburðaríkt í mínu lífi - og annarra. En nú þegar jólafríið er búið tekur alvara lífsins við - fyrir frumburðinn sem er fluttur hingað út til okkar.
Hann er búinn að vinna hörðum höndum að því að útskrifast úr menntaskóla undanfarna mánuði og útskrifaðist í desember, flutti til okkar, fór í frí - en nú tekur við lífsleikni/Aarhús námsskeið sem ég er að setja saman - byggt á lífsreynslu minni síðasta ár, með survivor raunveruleikaþáttinn til hliðsjónar.
Á hverjum degi verður frumburðurinn að vakna með okkur (svo hann snúi sólarhringnum ekki við). Þegar strákarnir eru farnir í skólann og við Jesper í vinnuna, þarf frumburðurinn að horfa á tvo þætti af seríunni Forbrydelsen - á dönsku - með dönskum texta. Hann þarf að taka glósur og skrifa stutta samantekt um hvern þátt - á dönsku.
Þegar sjónvarpsglápinu lýkur tekur við survivor hluti námsins. Þannig verður frumburðurinn fyrsta daginn að finna útúr því hvernig hann tekur strætó niður í bæ, hvar hann finnur kort af Aarhús niðrí bæ (án þess að þurfa að borga fyrir kortið), kaupa sér mánaðarkort í strætó og koma sér aftur heim. Hann má leita sér hjálpar á netinu og með því að spyrja dani og klukkan fjögur lýkur kennslu fyrsta daginn - og þá á frumburðurinn einnig að vera búinn að finna leiðina heim (af því það á að vera brjálað veður hérna á morgun eftir klukkan fjögur).
Á hverjum degi þarf frumburðurinn að fara niður í bæ í strætó og leysa verkefni sem snúast um að finna eitthvað praktískt - eins og t.d. hvar læknirinn okkar heldur sig. Það er ekkert grín að finna það get ég sagt ykkur.
Þegar náminu lýkur, eftir ca 2 mánuði, mun frumburðurinn þekkja miðbæ og nágrenni Aarhus betur en ég og sennilega tala dönsku betur.
Þetta er allt annað líf eftir að frumburðurinn kom til okkar.