www.anna.is
ravings of a lunatic í júlí 2011
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég fer í fríið..
Miðvikudagur, 06. júlí 2011

Í gær keypti ég mér flatbotna skó frá Bianco. Þeir líta út eins og gúmmítúttur nema þeir eru úr leðri og geðveikislega þægilegir.

Það eru útaf fyrir sig stórtíðindi að ég kaupi mér flatbotna skó og mér tókst næstum að detta þegar ég gekk í þeim í fyrsta skipti, enda alltaf á hælum. Fékk þá á útsölu á 100 kall danskar og keypti líka hvíta mussu því ég var að drepast úr hita á göngugötunni í Viborg eftir vinnu í gær. Keypti mér líka efni í kjól í Fjølner, sem er ein af uppáhalds tuskubúðunum mínum hérna.

Í morgun þegar ég kom úr sturtu, þurrkaði ég mér og Jesper fór að skellihlæja þegar ég fór í skóna í handklæði einu fata á leiðinni inní herbergi að klæða mig. "You really like those shoes".

I do.

Í skónum, með fæturna uppá borði í vinnunni:

06072011830.png

Ég á eitt verkefni eftir óklárað - af þeim sem ég ákvað að klára fyrir frí. Í kvöld pakka ég í tösku, bikiníi og kjólum og í fyrramálið höldum við af stað í önnur lönd.

Fyrst er það rúmt vikufrí með ástinni minni. Aftur til vinnu í eina viku - svo í langt frí með manni og börnum í sól og sumaryl.

Ég á yndislegt líf.


| anna | 12:45 | permalink | comments (2) |
Noctilucent cloud
Þriðjudagur, 12. júlí 2011

Svona leit himininn yfir Aarhus út í gærkvöldi:

Þetta er fyrirbæri sem kallast "Noctilucent cloud" - ský 80 - 90 km yfir jörðinni sem eru frosin og þess vegna lýsir sólinn þau upp þó hún sé sest.

Alveg ofboðslega fallegt.


| anna | 13:25 | permalink | comments (3) |
Rigningasumar - so far
Fimmtudagur, 21. júlí 2011

En það var glampandi sól í Kaupmannahöfn í byrjun vikunnar þegar ég fór að hitta vinkonu mína sem þar býr.

Shit hvað það var gaman hjá okkur. Ég kom á mánudegi og þegar við fórum að sofa vorum við orðnar mjög fallegar. Daginn eftir fórum við í bæinn. Hún þurfti að fara í tvær búðir og þegar það var búið spurði hún hvort það væri eitthvað sérstakt sem mig langaði að gera. Nah mig langaði bara að loitera svo við löbbuðum um, skoðuðum í búðir og versluðum föt og skó í second hand búðum.

Í einni búðinni var hálfgerð setustofa alveg innst, með púðum og sófum og stól. Þar prufuðum við sófana og stólinn, skoðuðum púða... okkur vantaði þetta allt saman.

OKKUR VANTAR ÞETTA ALLT SAMAN!

uglur.png

Shit hvað þetta var gaman. Seinna kvöldið drukkum við aðeins minna en hið fyrra, sem var gott því hún var að fara í vinnuna daginn eftir.

Hún er svo frábær. Það er svo gott að vita af henni í Kaupmannahöfn. Ég hlakka ekkert smá til að fara til hennar aftur.

Við Jesper höfum fengið sól líka, aðallega þegar við fórum til Prag - þó við höfum líka fengið massa rigningu, eldingar og þrumur þegar sólin var sest á kvöldin. Síðasta sumar fengum við geðveikt veður í Danmörku, brakandi sól og blíðu.

Í Prag tók ég þessa mynd af okkur þar sem við vorum caught in the rain og ég hélt að við myndum verða fyrir eldingu og drepast áður en við næðum uppá hótel - og svona er stemmingin í DK þessa dagana.

Caught in the rain


| anna | 18:47 | permalink | comments (0) |
Þvílík grimmd
Sunnudagur, 24. júlí 2011

Við vorum að horfa á Tour de France þegar fréttir af sprengjunni í Osló kom upp á skjáinn. Ég sá frétt um árás í Útey rétt áður en fólkið sem var að heimsækja okkur um kvöldið kom í mat.

Í gær sáum við hvað gerðist í fréttum. Ég er ekki viss um að ég nái utanum fjöldann af börnum og unglingum sem voru myrt né hvernig nokkur getur verið svona miskunnarlaus.


| anna | 9:26 | permalink | comments (0) |
Bluftoni
Sunnudagur, 24. júlí 2011

Þá er fjölskyldan búin að eignast bíl/rútu og ZGerman hefur verið seldur. Ég kvaddi hann með tárum - verulega góður bíll.

En þetta ferlíki er framtíðin þar sem við eigum svo mörg börn. Ég verð að bíta í að vera á strumpastrætó í einhver ár áður en ég kemst á alvöru bíl aftur. Ekkert við því að gera.

Í næstu viku erum við að fara að skoða hús við fallegustu götuna sem ég hef séð í Aarhus. Þessa hérna:

IMG_1211.png

Tók myndina úr nýja bílnum, er svoleiðis búin að stalka þessa götu undanfarið að það er ekkert venjulegt.


| anna | 12:14 | permalink | comments (0) |
Chanterelle
Sunnudagur, 24. júlí 2011

Tour de France er búið. Ástrali vann og unnusti minn gæti ekki verið sáttari, enda bjó hann í Ástralíu í mörg ár þó hann sé Danskur ríkisborgari.

Búin að vera hálf slöpp í dag, kláraði þessar fjórar parkódín töflur sem voru eftir á spjaldinu sem ég flutti með mér hingað í desember. Þegar keppnin kláraðist fór hann inní eldhús og byrjaði að elda eitthvað sem lyktar svo vel að þó ég sé slöpp og lítil get ég ekki beðið eftir að borða. Það eina sem ég veit er að það inniheldur hvítvín og Chanterelle sveppi.

chanterelle.png

Þegar hann byrjaði að leggja á borð, stóð ég upp, því ég ætlaði að hjálpa.

"No, I've got it under control. You just stay with what you're doing."

Hann er svo góður við mig.


| anna | 17:30 | permalink | comments (0) |
PowerSolo
Laugardagur, 30. júlí 2011

Þetta lag:

Úr þessari auglýsingu:


| anna | 18:18 | permalink | comments (0) |

ravings í júlí 2011
monthly archive

links
blogs
links - web