Mánudagur, 20. júní 2011
Í danmörku er skreytt með danska fánanum þegar fólk á afmæli. Mér finnst þetta skemmtilegt og ákvað að útbúa afmælisdúk fyrir fjölskylduna okkar og nota í afmælinu hans Dodda. Keypti efni og þrykkti á það bæði íslenska og danska fánann. Kom svona skemmtilega vel út:

En ég var á Íslandi í síðustu viku í fyrsta skipti eftir að ég flutti út. Þegar ég flutti til DK hitti ég frænku mína sem býr hér og sagði mér að lesa um culture shock sem fólk upplifir þegar það flytur í nýtt land. Ég fór náttúrlega á netið og las um hvað fólk getur átt von á að upplifa. Eitt af því er að fólk fer að sjá vini/ættingja eða starfsfélaga frá upprunalandinu í ókunnugu fólki á förnum vegi í nýja landinu. Þetta er víst merki um að þú sért með heimþrá.
Ég hef ekki upplifað þetta í danmörku - en - ég upplifði þetta tvisvar á meðan ég var á Íslandi í þennan stutta tíma sem ég var þar (5 daga). Ég var með heimþrá á meðan ég var á Íslandi og gat ekki beðið eftir að fara aftur til danmörku.
Flugið sem ég átti að fara í með iceland air átti að fara korter yfir eitt á föstudaginn. Fyrst var fluginu seinkað til hálf fimm, en þegar því var svo seinkað til eitt um nóttina (tólf tíma seinkun) ákvað ég að kaupa miða með iceland express, vél sem átti að fara klukkan korter yfir fimm á fös. Tókst að fá töskuna mína til baka frá iceland air (fékk aðstoð hjá yndislegri stelpu sem fór og fann töskuna fyrir mig) tékkaði töskuna inn hjá iceland express í þetta skipti og náði fluginu sem stoppaði í Aalborg á leiðinni til CPH og ég fór auðvitað út á fyrri áfangastaðnum þar sem Doddi og Jesper biðu mín.
Sem betur fer komst ég með þessari vél. Gat ekki beðið eftir að komast aftur heim!