www.anna.is
ravings of a lunatic í júní 2011
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sól, sól, skín á mig
Föstudagur, 03. júní 2011

Maðurinn sem vann hjartað mitt er að fíra upp grillinu með Dodda, við vorum að koma heim af ströndinni þar sem við skoðuðum Sculptures by the sea sýninguna - my god hvað þetta var gaman. Hjóluðum niðureftir í 25 stiga hita og glampandi sól, lögðum hjólunum rétt hjá bátahöfninni og röltum út meðfram ströndinni, lögðumst niður í sandinn og sleiktum sólina á meðan Doddi bjó til sandkastala. Hjóluðum svo aftur heim í jafn miklum hita og glampandi sól. Þessi dagur er búinn að vera geggjaður, ég trúi ekki að það sé 3. júní. Ég verð svört eftir sumarið og sennilega dauð úr sortuæxli eftir fimm ár.

Ég er búin að kaupa mér nýja myndavél en vantar hulstur utanum hana og vegna þess að ég vil passa uppá hana fer ég ekki með hana neitt - pointless að eiga myndavél sem maður fer ekki með neitt - svo á morgun förum við niðrí bæ og finnum hulstur utanum myndavélina.

Þá fer ég að setja inn myndir á bloggið mitt aftur.


| anna | 16:31 | permalink | comments (0) |
Þessi sunnudagur
Sunnudagur, 05. júní 2011

Ég er sumsé búin að kaupa mér hulstur fyrir nýju myndavélina og tók hana með í bíltúrinn í dag.

Engisprettan sem við fundum:

xx-IMG_0283.png

Gamla myllan - brakandi blíða:

Á leiðinni á ströndina:

Doddi í sjónum:

xx-IMG_0301.png

Í kvöldmatinn var einn sá besti lambakjötsréttum sem ég hef á ævinni smakkað og ég ligg nánast afvelta þegar ég skrifa þetta. Það sem þessi maður galdrar fram í eldhúsinu, það er alveg út úr heiminum gott.


| anna | 18:56 | permalink | comments (0) |
Hot
Þriðjudagur, 07. júní 2011

Hitamælirinn í ZGerman brann yfir um helgina og er fastur í 39.5° þó það sé ekki nema 19 stiga hiti úti núna.

Þetta er náttúrlega íslenskur bíll þó upprunalandið sé Þýskaland. Danmörk er too hot for Zcar.


| anna | 11:24 | permalink | comments (0) |
Að rifna úr stolti
Miðvikudagur, 08. júní 2011

Hamingjuóskum rignir yfir Dodda í dag.

Hann var í stöðumati í skólanum í gær og þegar kennarinn hafði samband við okkur í hádeginu í dag sagðist hann ekki geta hrósað honum nóg því drengurinn gjörsamlega glansaði í gegnum prófið og af því honum gekk svo vel í stöðumatinu getur hann valið hvaða skóla hann fer í.

Þegar hann flutti hingað út kunni hann að segja "leverpostej" og ekki mikið meira en það. Ég er svo stolt af honum að ég er að rifna í tætlur.

IMG_0360.png

"Hard work pays off" sagði hann brosandi og tók svo til að vinna heimavinnuna sem hann fékk í skólanum í dag.


| anna | 12:04 | permalink | comments (5) |
Hljómsveitin USB
Fimmtudagur, 09. júní 2011

Aksel, annað bónusbarnið mitt, spilar í hljómsveit sem heitir USB og við vorum á tónleikum hjá þeim áðar. Hann tekur sig rosalega vel út á gítarnum!

xIMG_0400.png


| anna | 18:36 | permalink | comments (2) |
Buzz - á Íslandi
Þriðjudagur, 14. júní 2011

buzz.png

Það var ekkert smá gaman í gærkvöldi í æðislegri garðveislu í vogunum. Rétt um tíu fórum við inn og spiluðum Buzz. Ég og Linda vinkona vorum saman í lið "AL", þrýstna ljóskan - og við unnum keppnina!

Helvíti var þetta skemmtilegt kvöld.


| anna | 8:08 | permalink | comments (0) |
Brotin fánalög og "reverse" heimþrá
Mánudagur, 20. júní 2011

Í danmörku er skreytt með danska fánanum þegar fólk á afmæli. Mér finnst þetta skemmtilegt og ákvað að útbúa afmælisdúk fyrir fjölskylduna okkar og nota í afmælinu hans Dodda. Keypti efni og þrykkti á það bæði íslenska og danska fánann. Kom svona skemmtilega vel út:

En ég var á Íslandi í síðustu viku í fyrsta skipti eftir að ég flutti út. Þegar ég flutti til DK hitti ég frænku mína sem býr hér og sagði mér að lesa um culture shock sem fólk upplifir þegar það flytur í nýtt land. Ég fór náttúrlega á netið og las um hvað fólk getur átt von á að upplifa. Eitt af því er að fólk fer að sjá vini/ættingja eða starfsfélaga frá upprunalandinu í ókunnugu fólki á förnum vegi í nýja landinu. Þetta er víst merki um að þú sért með heimþrá.

Ég hef ekki upplifað þetta í danmörku - en - ég upplifði þetta tvisvar á meðan ég var á Íslandi í þennan stutta tíma sem ég var þar (5 daga). Ég var með heimþrá á meðan ég var á Íslandi og gat ekki beðið eftir að fara aftur til danmörku.

Flugið sem ég átti að fara í með iceland air átti að fara korter yfir eitt á föstudaginn. Fyrst var fluginu seinkað til hálf fimm, en þegar því var svo seinkað til eitt um nóttina (tólf tíma seinkun) ákvað ég að kaupa miða með iceland express, vél sem átti að fara klukkan korter yfir fimm á fös. Tókst að fá töskuna mína til baka frá iceland air (fékk aðstoð hjá yndislegri stelpu sem fór og fann töskuna fyrir mig) tékkaði töskuna inn hjá iceland express í þetta skipti og náði fluginu sem stoppaði í Aalborg á leiðinni til CPH og ég fór auðvitað út á fyrri áfangastaðnum þar sem Doddi og Jesper biðu mín.

Sem betur fer komst ég með þessari vél. Gat ekki beðið eftir að komast aftur heim!


| anna | 16:42 | permalink | comments (2) |
Doddi 13 ára í dag!
Miðvikudagur, 22. júní 2011

Fórum með allt gengið + Jessie, vin Dodda, í tívolí í tilefni dagsins

IMG_0616.png

Borðuðum afmælisköku klukkan þrjú - eins og fólk gerir þegar það á afmæli:

IMG_0652.png

Hrikalega sveittir og sáttir drengir:

IMG_0667.png


| anna | 15:21 | permalink | comments (2) |

ravings í júní 2011
monthly archive

links
blogs
links - web