Miðvikudagur, 08. september 2010
Ég eyddi helginni í DK. Á laugardaginn fórum við í tívolí, sem var æðislega gaman, og á sunnudaginn sváfum við út og borðuðum svo french toast í morgunmat. Áður en ég vissi af þurfti ég að fara aftur. Ég kem til með að fljúga á milli reglulega fram að áramótum og þá mun ég flytja. Í næstu ferð tek ég krakkana með svo þau sjái hvar við ætlum að búa.
Og vegna þess að ég er að flytja er ég byrjuð að losa mig við allskonar dót sem ég ætla ekki að taka með mér. Í kvöld kom Júlía systir að sækja Toy story dótið sem ég keypti fyrir löngu og fleira dót fyrir litla krakka. Helgi Henrik er verulega sáttur við að hafa fengið Bósa Ljósár og Vidda í afmælisgjöf í gær og mér er sagt að hann skilji þá ekki við sig. Um helgina verður haldið uppá afmælið og þá fær hann Zurg, Mr. Potato head, Bo Peep, kúrekastelpuna, hestinn og risaeðluna Rex.
Ég er líka búin að henda alveg svakalega miklu af dóti og næst þegar J kemur til landsins mun ég fara í gegnum hvað ég tek með mér úr eldhúsinu. Pabbi fær sennilega öll húsgögnin mín svo ekki þarf ég að böggast við að losa mig við þau.
Ég á aldrei eftir að gleyma hvernig hann tók á móti mér á flugvellinum á föstudaginn. Eins og Eva vinkona orðar það: Anna, þú ert búin að finna mann sem er ekki fáviti.