Miðvikudagur, 01. september 2010
16:57 - kom heim úr vinnunni
17:02 - bloggaði
17:25 - fór í bað - allt of heitt bað
17:45 - uppí rúm, með handklæði vafið um hausinn
17:55 - sofnuð
19:00 - vaknaði
19:13 - klædd, tilhöfð (reyndar með blautt hár), að leggja bílnum við Háskólabíó
Ég er svo fegin að ég vaknaði vegna þess að ég var svo heppin að fá boðsmiða á forsýningu myndarinnar "Future of Hope". Og ég er sammála þeim sem sagði: "þetta er the real inspired by Iceland".
Það er heilmikil von allt í kringum okkur.
En það þarf líka að moka mikinn flór.