www.anna.is
ravings of a lunatic í september 2010
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Magnað
Miðvikudagur, 01. september 2010

Það er risastórt, hrikalega gott Marabou súkkulaðistykki búið að liggja á stofuborðinu í hátt í viku.

Anna: hvernig stendur á því að enginn er búinn að borða þetta súkkulaði?
Doddi: we finally gained self control?


| anna | 17:02 | permalink | comments (4) |
Eftir vinnu - future of hope
Miðvikudagur, 01. september 2010

16:57 - kom heim úr vinnunni
17:02 - bloggaði
17:25 - fór í bað - allt of heitt bað
17:45 - uppí rúm, með handklæði vafið um hausinn
17:55 - sofnuð
19:00 - vaknaði
19:13 - klædd, tilhöfð (reyndar með blautt hár), að leggja bílnum við Háskólabíó

Ég er svo fegin að ég vaknaði vegna þess að ég var svo heppin að fá boðsmiða á forsýningu myndarinnar "Future of Hope". Og ég er sammála þeim sem sagði: "þetta er the real inspired by Iceland".

Það er heilmikil von allt í kringum okkur.
En það þarf líka að moka mikinn flór.


| anna | 22:01 | permalink | comments (0) |
Point of no return
Miðvikudagur, 01. september 2010

Sumum á eftir að þykja það sem ég er um það bil að fara að gera, insane.

Sannleikurin er að innst inni vil ég frekar lifa við að ég hafi gert mistök, en að lifa við að ég reyndi ekki. Í þessu tilfelli veit ég að ég myndi alltaf sjá eftir því.

Ég mun kveðja landið mitt, en held röddinni.
Ekki fékk litla hafmeyjan svona góðan díl.



| anna | 23:38 | permalink | comments (5) |
Change of plan
Laugardagur, 04. september 2010

Ég átti leið á fund með Dacoda starfsfólkinu í gær um hádegi - og fyrst ég var að fara til Keflavíkur ákvað ég að nota ferðina.

Verð komin aftur til íslands á mánudaginn.


| anna | 7:13 | permalink | comments (0) |
Ekki fáviti
Miðvikudagur, 08. september 2010

Ég eyddi helginni í DK. Á laugardaginn fórum við í tívolí, sem var æðislega gaman, og á sunnudaginn sváfum við út og borðuðum svo french toast í morgunmat. Áður en ég vissi af þurfti ég að fara aftur. Ég kem til með að fljúga á milli reglulega fram að áramótum og þá mun ég flytja. Í næstu ferð tek ég krakkana með svo þau sjái hvar við ætlum að búa.

Og vegna þess að ég er að flytja er ég byrjuð að losa mig við allskonar dót sem ég ætla ekki að taka með mér. Í kvöld kom Júlía systir að sækja Toy story dótið sem ég keypti fyrir löngu og fleira dót fyrir litla krakka. Helgi Henrik er verulega sáttur við að hafa fengið Bósa Ljósár og Vidda í afmælisgjöf í gær og mér er sagt að hann skilji þá ekki við sig. Um helgina verður haldið uppá afmælið og þá fær hann Zurg, Mr. Potato head, Bo Peep, kúrekastelpuna, hestinn og risaeðluna Rex.

Ég er líka búin að henda alveg svakalega miklu af dóti og næst þegar J kemur til landsins mun ég fara í gegnum hvað ég tek með mér úr eldhúsinu. Pabbi fær sennilega öll húsgögnin mín svo ekki þarf ég að böggast við að losa mig við þau.

Ég á aldrei eftir að gleyma hvernig hann tók á móti mér á flugvellinum á föstudaginn. Eins og Eva vinkona orðar það: Anna, þú ert búin að finna mann sem er ekki fáviti.


| anna | 22:20 | permalink | comments (7) |
Já. Já. JÁ!
Fimmtudagur, 16. september 2010


| anna | 20:11 | permalink | comments (4) |
Spurning
Fimmtudagur, 23. september 2010

Hvernig stendur á því að ég á ekki toblerone akkúrat núna?


| anna | 20:43 | permalink | comments (2) |
That's what it is
Laugardagur, 25. september 2010


| anna | 10:34 | permalink | comments (0) |

ravings í september 2010
monthly archive

links
blogs
links - web