Laugardagur, 28. ágúst 2010
Fór að versla í morgun og kom heim með kerti, hvítvín, bjór, svínalundir, batman begins, the dark knight og fleira góðgæti - nema þegar ég opnaði hurðina heima var geitungur fluttur inn. Hann heitir Móglí.
Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég tilkynnt Móglí að nærveru hans væri ekki óskað og gefið honum tíu mínútur til að hypja sig. Annars yrði hann drepinn.
En einhverra hluta vegna kippti ég mér ekkert upp við nýja sambýlinginn, gekk frá öllu góssinu og skellti batman í tækið. Þegar ég var búin að því bauð ég honum að horfa með mér. Ég held að Móglí hljóti að vera alíslenskur því hann er með smá athyglisbrest og er sennilega ofvirkur líka, allavega gat hann ekki setið kyrr yfir batman lengi í einu, en hann kom samt alltaf aftur - enda ekki annað hægt þegar batman er annars vegar. Svo svindla ég sjálf því ég var ekki að horfa á myndina heldur, ég var að ganga frá pappírum í möppur.
Seinnipartinn fór ég í bað, allt of heitt bað, og þegar ég kom uppúr fór ég beina leið uppí rúm og sofnaði. Móglí vakti mig rétt fyrir klukkan tíu og ég fór frammúr. Fékk símtal frá útlöndum frá manninum sem ég elska, sagði honum reyndar ekki frá Móglí, enda er það samband algjörlega platónískt. Hann er fúll af því afmælisgjöfin mín er ekki komin þó hann hafi verið fullvissaður um að hún kæmi til mín í dag. Hún kemur.
Nú ætlum við Móglí að skella The dark knight í tækið og ég held að hann ætli að vaka með mér þangað til ég fer útá flugvöll í nótt. Ég er að sækja frumburðinn minn sem er búinn að vera á Ítalíu síðustu viku. Það verður gott að fá hann heim.