Miðvikudagur, 25. ágúst 2010
Í kvöld hef ég verið að fara yfir geisladiskana mína úr bílnum. Þetta eru helvíti margir diskar og kemur í ljós að nánast öll tónlist sem ég hef hlustað á undanfarin átta ár eru á þessum diskum. Jibbí!
Restina af tónlistinni sem ég glataði þegar harði diskurinn krassaði er á diskum í stórri möppu. Ég var bara búin að gleyma því.
Ég veit ekki hvað þarf að gerast til að ég nenni að hreinsa til á hörðu diskunum mínum, ég væri líklegri til að pakka þeim niður og byrja alveg uppá nýtt.
Annars er ekkert að frétta af mér annað en að ég er að láta mig hlakka til þess að verða 39 ára á sunnudaginn.
Já - og svo er ég búin að vera að berjast við brjálæðislega þörf fyrir að kaupa borðbúnað og rúmföt. Það segir sína sögu. Tapaði reyndar í rúmfatabaráttunni - en rúmið mitt hefur líka aldrei verið svona fallegt. Vantar bara ákveðin mann í það og þá væri það fullkomið.