Svo gott
Mánudagur, 02. ágúst 2010
Ég veit ekki hvað ég gerði til að eiga svona líf skilið, en ég er alveg ofboðslega þakklát.
Þetta er dásamlegt.
Quote of the day
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010
“You can never cross the ocean unless you have the courage to lose sight of the shore.”
- Christopher Columbus
20:07
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010
|
|
 |
 |
Yndislegt
Fimmtudagur, 12. ágúst 2010
Ég horfði á fyrstu þrjá þættina af Cougar town í kvöld, skipti yfir á Boston Legal og ákvað að eyða Cougar town af græjunni þar sem ég á aldrei eftir að nenna að hvorki horfa á, né hlusta á þessa þætti.
Svo fór ég uppí rúm.
Ég á ekki þetta rúm sem er hér, ég er með það í láni. Þegar ég var úti fórum við að tala um hvað af húsgögnum ég ætti að taka með mér (ég ákvað að taka engin húsgögn með mér) en þegar ég sagði honum að ég ætti ekki rúm svo það þyrfti ekki að flytja neitt úr svefnherberginu, sagði hann að það væri ekki rétt hjá mér, því víst á ég rúm. Það er bara í danmörku. Svo nú á ég rúm í fyrsta skipti í sex ár.
En já, ég fór uppí rúm þegar ég var búin að fá ágætan skammt af Denny Crane, skreið undir sæng og fór að hugsa. Það er margt sem ég er búin að vera að hugsa - því stundum fer ekki allt eins og þú vonaðist til að það myndi fara og þá þarf maður að finna nýjar leiðir. Og ég á til að geta ekki hætt að hugsa fyrr en ég er búin að finna leið sem er raunhæf. Þess vegna sofnaði ég svona seint í gærkvöldi.
Nema hann hringdi og ég sagði honum hvað ég var að hugsa og þá sagði hann svolítið sem gerði mér grein fyrir að það þarf ekkert að hugsa þetta meira. Þetta er komið og það er einfalt, raunhæft og mun ganga upp.
Mér hefur aldrei fundist ég vera svona rík. Að heyra röddina hans, það sem hann segir, heyra hláturinn hans.. sjá hvernig hann er með krökkunum... hvernig hann horfir á mig...
Ég er rík. Ég á yndislega fjölskyldu.
Hann ætlar að verða pirraður gamall kall sem hrópar ókvæðisorðum að krökkum sem stela eplum úr garðinum okkar. Ekki af því hann hafi nokkuð á móti því að þau steli eplunum, hann vill að þau geri það. Þetta er meira prinsipp mál. Allir alvöru gamlir kallar pirrast útí lítil börn sem nappa eplum úr görðum. Og ég er búin að segja honum að ég muni standa með honum í þessu - eins og klettur - þó ég muni kannski segja blíðlega "hvaða, hvaða" annað slagið og strjúka yfir hárið hans. Eða eyrun, ef hárið verður allt komið þangað. Þá ætlar hann að segja mér, með tilþrifum, hvað þetta eru ósvífin börn og ég mun staðfesta að það sé allt satt og rétt og verulega skarplega athugað hjá honum.
Ég hlakka svo til. Ég ætla að gefa honum staf. Þá getur hann sveiflað honum í átt að börnunum um leið og hann pirrast. Börnunum á eftir að finnast það mjög tilkomumikið og gaman og þau eiga eftir að koma aftur og aftur til að sjá hann sveifla stafnum.
Þetta verður yndislegt.
Ég er svo ástfangin að það er óhætt að segja að ég sé ástfangin í drasl.
|
|
 |
 |
Listen very carefully, I shall say this only once..
Sunnudagur, 15. ágúst 2010
'Allo 'Allo! þættirnir eldast ótrúlega vel. Við krakkarnir erum búin að liggja í kasti í kvöld yfir ruglinu í kringum The Fallen Madonna with the Big Boobies.
Herr Flick er yndislegur.
Anna og hákarlinn
Sunnudagur, 15. ágúst 2010
Systir mín hringdi í mig áðan og sagði að hún yrði að segja mér frá draumnum sem hana dreymdi í morgun.
Í draumnum var einhver fjölskylduhittingur og allir komu með eitthvað dýr með sér. Hún kom með lítinn kjölturakkahund sem var voða gæfur. Ég kom með hákarl.
Hákarlinn var risastór með þrefalda röð af tönnum og ef einhver kom nálægt mér reyndi hann að bíta af honum útlim. Og ég var svona rosalega glöð með hákarlinn minn, hló mikið.
Þegar hún var að segja mér frá þessu dó ég næstum úr hlátri, mér fannst þetta svo fyndið.
Ekki er ég með ofnæmi fyrir hákörlum. hehehe
|
|
 |
 |
Vondur draumur
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010
Í dag kvaddi ég afa minn. Þegar ég sá kistuna fékk ég tár í augun. Ég hef aldrei séð svona fallega kistu. Hún er úr eik og er fallega útskorin. Ofaná sænginni lágu sixpensarar afa og litla passíusálmabókin hans.
Þegar amma var kistulögð á sínum tíma var ég frosin og einhverra hluta vegna var ég ein og hálf umkomulaus í þeirri athöfn. Ég man hvað ég varð fegin og þakklát þegar bróðir hans pabba tók utanum mig, ég þurfti svo ofboðslega á því að halda.
í dag var pabbi til staðar fyrir mig, og ég var til staðar fyrir hann.
Þó ég hafi farið aftur í vinnuna þegar ég var búin að jafna mig eftir athöfnina leið mér ekki vel. Og þegar ég kom heim úr vinnunni fór ég strax í bað, sem er dómsdagsviðbragð númer eitt hjá mér - alltaf. Þegar ég var búin í baði lagðist ég uppí rúm og sofnaði.
Dreymdi að ég væri stödd á torgi í stórri borg sem ég vissi að ég átti að þekkja, en ég var lost. Í mannþrönginni reyndi ég í örvæntingu að finna andlit sem ég þekkti, en ég þekkti engan og vissi ekki hvert ég átti að fara. Hljómar kannski ekkert skelfilega, en mér leið ekki vel þegar ég vaknaði aftur.
Þá er það bara dómsdagsviðbragð númer eitt - endurtekið eftir þörfum.
|
|
 |
 |
stjornlagathing.is
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010
Ágæti Þorsteinn,
Þakka þér fyrir tölvupóstinn 10. ágúst s.l.
Í kjölfar bankahrunsins varð mörgum löndum okkar ljóst að eitthvað var að í stjórnsýslu landsins. Háværar raddir kröfðust grundvallarbreytinga á stjórnskipulaginu. Lýðveldisbyltingin krafðist breytinga á stjórnarskránni en
hreyfingin var ein af þeim grasrótarhreyfingum sem raddirnar sköpuðu, með vonina að leiðarljósi. Lýðveldisbyltingin var stofnuð í janúar 2009 sem tilraun til að virkja almenning til breytinga á stjórnarskránni.
Opin og gagnsæ Lýðveldisbyltingin nýtti sér, á kerfisbundinn hátt, Wiki-netsíðu í þeim tilgangi að kalla eftir tillögum frá fólkinu í landinu að breytingum á stjórnarskránni í þeirri von að formlega yrði að lokum staðið að stjórnarskrárbreytingum á vegum stjórnvalda - með aðkomu almennings. Tilraunin tókst vel og á undraskömmum tíma var hugmyndum að breytingum á stjórnarskránni safnað saman og komið á framfæri við stjórnmálaflokkana fyrir kosningarnar í apríl 2009.
Við undirrituð tókum virkan þátt í grasrótarumræðunni. Framtíðarsýn okkar og staðföst trú, um að formlegt stjórnlagaþing yrði að veruleika í nánustu framtíð, varð til þess að við tókum að okkur þetta lén til geymslu og verndar.
Lénið var skráð 18. febrúar 2009. Við gerðum samkomulag okkar í millum: að ekki mætti ráðstafa léninu nema bæði samþykktu. Nú er framtíðin komin. Okkur er sönn ánægja að veita Stjórnlagaþingi aðgang að léninu www.stjornlagathing.is fyrir hönd íslensku þjóðarinnar með tveimur skilyrðum: 1) að lénið verði notað á skilvirkan hátt til að miðla réttum og skiljanlegum upplýsingum gegnum netið til allra Íslendinga um framgang stjórnlagaþings og 2) að saga lénsins verði skráð hjá stjórnlaganefnd og birt á vefnum stjornlagathing.is.
Með allri viðingu og ósk um gott gengi,
Anna Helgadóttir (Hagamel 53, Reykjavík
Egill Jóhannsson (Malarási 8, Reykjavík)
---
Ég flutti hýsinguna í gær og í dag, 18. ágúst, mun ég skrá lénið af mínu nafni yfir á Alþingi.
---
Við vonum svo sannarlega að allt ferlið að nýrri eða breyttri stjórnarskrá gangi að óskum og afurðin verði að lokum sjálfbært lýðræðissamfélag sem fyrirmynd annarra (sjálfbært í merkingunni að samtíminn skerði ekki rétt framtíðarinnar til a.m.k. sömu lífskjara).
Verkefnið gæti jafnvel skapað ferla og þekkingu og afleidda tækni eins og hugbúnaðarlausnir sem gæti orðið vísir að útflutningi á þekkingu við innleiðingu eða uppfærslu sjálfbærs lýðræðis í öðrum samfélögum sbr. bloggfærslu mína, Framtíðarsýn Íslands: Nýsköpun sjálfbærs samfélags, frá því í mars 2009 http://egill.blog.is/blog/egill/entry/816849/.
Því þarf að vanda til verka, setja markið hátt og fara fram úr væntingum þjóðarinnar og það er mögulegt eins og Rannsóknarnefnd Alþingis sýndi með skýrslu sinni.
Góða ferð.
|
|
 |
 |
Í minningu afa
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Ég á margar af fallegustu og dýrmætustu bernskuminningunum mínum frá afa Jóni og ömmu Fanney á Hlíðarveginum. Þegar ég var lítil fannst mér ég hvergi öruggari í öllum heiminum en hjá afa og ömmu. Mér fannst afi vera ofurmenni enda gat hann smíðað allt og ekkert virtist vera honum ofviða.
Afi var stór og sterkur maður. Húsasmíðameistari sem braust til mennta við kröpp kjör og sá fyrir stóru heimili með því að vinna myrkranna á milli. Hann byggði Hlíðarveginn með berum höndum og reisti mér þetta skjól æskuáranna löngu áður en ég fæddist.
Nú þegar afi minn hefur farið að heiman frá Hlíðarveginum í síðasta sinn finn ég hversu stórt skarð þessi stóri maður skilur eftir sig. Skarð sem er aðeins hægt að fylla með ljúfum minningum um góðan mann sem mætti öllu í lífsins ólgusjó með stakri ró og æðruleysi. Afi var stoltur og hógvær maður sem vann öll sín verk af alúð og samviskusemi, laus við hroka og stærilæti. Hann var ekki mikið fyrir það að flagga tilfinningum sínum en á sinn látlausa, rólega og hlýja hátt sýndi hann okkur sem nutum þess að alast upp undir hans styrka verndarvæng að hann bar hag okkar og hamingju fyrir brjósti og lét þá sjálfan sig jafnan mæta afgangi.
Þegar amma dó bar afi harm sinn í hljóði en þegar ég fylgdist með honum smíða krossinn á leiði ömmu fann ég hversu sorgin og söknuðurinn ristu djúpt. Þegar afi fór risastóru völundarhöndum sínum um viðinn gerði hann það af ást og hlýju.
Afi Jón var heilsteyptasti maður sem ég hef kynnst. Hann var strangheiðarlegur, talaði ekki illa um nokkurn mann, vildi engum illt og fór aldrei með fleipur. Það sem afi sagði stóð eins og stafur á bók. Afi var Íslendingur af gamla skólanum sem lét hverjum degi nægja sína þjáningu og lét sig aldrei dreyma um að eignast eitthvað sem hann gæti ekki aflað af eigin rammleik, með löngum og erfiðum vinnustundum, þar sem hann taldi aldrei líkamlegt erfiði eftir sér. Afi var maður þeirrar gerðar sem því miður virðist í útrýmingarhættu á Íslandi.
Afi Jón var stór maður í tvennum skilningi og það var hlýtt í skugga hans og þótt það verði erfitt að fara með honum síðasta spölin þá er þakklætið fyrir að fá að njóta visku hans og hlýju sorginni yfirsterkari.
Og þótt lífið hafi kennt manni að gamalt fólk muni fyrr eða síðar hverfa á braut þá er sárt að horfa á eftir manni sem hefur vakað yfir manni frá fyrsta degi. Ég get ekki hugsað mér betri fyrirmynd en afa Jón og veit að lífsviðhorf hans eru öruggasti áttavitinn sem hægt er að styðjast við á lífsleiðinni.

|
|
 |
 |
Heard this tonight
Sunnudagur, 22. ágúst 2010
CD cleanup
Miðvikudagur, 25. ágúst 2010
Í kvöld hef ég verið að fara yfir geisladiskana mína úr bílnum. Þetta eru helvíti margir diskar og kemur í ljós að nánast öll tónlist sem ég hef hlustað á undanfarin átta ár eru á þessum diskum. Jibbí!
Restina af tónlistinni sem ég glataði þegar harði diskurinn krassaði er á diskum í stórri möppu. Ég var bara búin að gleyma því.
Ég veit ekki hvað þarf að gerast til að ég nenni að hreinsa til á hörðu diskunum mínum, ég væri líklegri til að pakka þeim niður og byrja alveg uppá nýtt.
Annars er ekkert að frétta af mér annað en að ég er að láta mig hlakka til þess að verða 39 ára á sunnudaginn.
Já - og svo er ég búin að vera að berjast við brjálæðislega þörf fyrir að kaupa borðbúnað og rúmföt. Það segir sína sögu. Tapaði reyndar í rúmfatabaráttunni - en rúmið mitt hefur líka aldrei verið svona fallegt. Vantar bara ákveðin mann í það og þá væri það fullkomið.
|
|
 |
 |
The promise
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010
In Icelandic:
Í kvöld var mér gefið loforð. Það var upp úr þurru og þegar hann sleppti orðinu varð mér orðavant. Ég held að ég hafi gleymt að anda í smá stund. Hann tók fram að honum væri alvara, en ég vissi það. Sumt segir fólk einfaldlega ekki nema af því það meinar það. Ja, nema fávitar og það er hann ekki.
Hann hlakkar til að vita hvað mér finnst um afmælisgjöfina sem hann sendi til mín. Og ég hlakka svo til að vita hvað hann gefur mér í afmælisgjöf, get hreinlega ekki beðið. Hann er búinn að segja að fyrst á ég eftir að verða hissa og svo á ég eftir að verða all smiles. Ef það verður þannig, þá er það sem mig grunar rétt. Ég er búin að finna mann sem "gets me" í alvöru.
Annars skiptir ekki öllu máli hvað hann gefur mér í afmælisgjöf, ég er búin að ákveða að eyða ævinni með honum hvort sem er.
Það eru engar smá breytingar yfirvofandi í mínu lífi. Til hins betra.
---
This is the google translation into English:
Tonight I was given promises. It was dry out and when he let the word become my words carefully. I think I have forgotten to breathe for a while. He accepted that he was serious, but I knew it. Some people simply say only because it makes it. Well, unless asshole and it is not.
He looks forward to what I feel about birthday, which he sent to me. And so I look forward to see what he gives me a birthday present, simply can not wait. He has been saying that since i might be surprised and I'm going to have all smile. If it is so, then is what I suspect correctly. I have to find a man who "gets me" really.
Everything else does not matter what he gives me a birthday present, I've decided to spend my life with him each time.
There are no pending some changes in my life. For the better.
---
...and what it really says:
Tonight I was given a promise. It was out of the blue and when he fell silent I couldn't speak. I think I even forgot to breathe for a moment. He told me he was serious, but I knew that. Some things you don't say unless you mean them. Well.. unless you are an asshole, and that's one thing he is not.
He really looks forward to my reaction to the birthday present he sent to me. And I'm so excited to know what it is, I can hardly wait. He told me that at first, I will probably be very surprised and then, I will be all smiles. And if that happens, it means I am right. I have found a man who really gets me.
But it doesn't really matter what he got me, I've decided to spend the rest of my life with him regardless.
My whole life is about to change. In a good way.
|
|
 |
 |
Be happy
Föstudagur, 27. ágúst 2010
Hundur á roði
Föstudagur, 27. ágúst 2010
Af hverju segir Biskup ekki af sér?
Það hagnast aðeins ein manneskja á því að hann haldi embættinu úr því sem komið er: hann sjálfur. Þetta er mjög gott dæmi um þegar menn taka sérhagsmuni fram yfir hagsmuni heildarinnar.
Það er ekki betra fyrir kirkjuna að hann sitji áfram. Það er alveg ljóst, svo ef hann væri að hugsa um hag kirkjunnar væri hann búinn að stíga niður.
Ég vona að þetta ömurlega mál verði til þess að aðskilnaður ríkis og kirkju verði að veruleika á Íslandi.
|
|
 |
 |
Ég og Móglí
Laugardagur, 28. ágúst 2010
Fór að versla í morgun og kom heim með kerti, hvítvín, bjór, svínalundir, batman begins, the dark knight og fleira góðgæti - nema þegar ég opnaði hurðina heima var geitungur fluttur inn. Hann heitir Móglí.
Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég tilkynnt Móglí að nærveru hans væri ekki óskað og gefið honum tíu mínútur til að hypja sig. Annars yrði hann drepinn.
En einhverra hluta vegna kippti ég mér ekkert upp við nýja sambýlinginn, gekk frá öllu góssinu og skellti batman í tækið. Þegar ég var búin að því bauð ég honum að horfa með mér. Ég held að Móglí hljóti að vera alíslenskur því hann er með smá athyglisbrest og er sennilega ofvirkur líka, allavega gat hann ekki setið kyrr yfir batman lengi í einu, en hann kom samt alltaf aftur - enda ekki annað hægt þegar batman er annars vegar. Svo svindla ég sjálf því ég var ekki að horfa á myndina heldur, ég var að ganga frá pappírum í möppur.
Seinnipartinn fór ég í bað, allt of heitt bað, og þegar ég kom uppúr fór ég beina leið uppí rúm og sofnaði. Móglí vakti mig rétt fyrir klukkan tíu og ég fór frammúr. Fékk símtal frá útlöndum frá manninum sem ég elska, sagði honum reyndar ekki frá Móglí, enda er það samband algjörlega platónískt. Hann er fúll af því afmælisgjöfin mín er ekki komin þó hann hafi verið fullvissaður um að hún kæmi til mín í dag. Hún kemur.
Nú ætlum við Móglí að skella The dark knight í tækið og ég held að hann ætli að vaka með mér þangað til ég fer útá flugvöll í nótt. Ég er að sækja frumburðinn minn sem er búinn að vera á Ítalíu síðustu viku. Það verður gott að fá hann heim.
|
|
 |
 |
39
Sunnudagur, 29. ágúst 2010
L.O.V.E
Sunnudagur, 29. ágúst 2010
Pappírar
Sunnudagur, 29. ágúst 2010
Ég er búin að fara í gegnum haug af pappírum í dag og í nótt og hef komist að því að ég lifi nú bara frekar skemmtilegu lífi.
Eitt af því sem ég fann, og mér finnst skemmtilegt, eru glósur sem ég tók niður varðandi Lýðveldisbyltinguna. Á einu blaði stendur á spássíunni: "Mér finnst stundum svo magnað hvað menn fara flókna leið til að gera hlutina einfalda."
Ég veit ekki hvort ég hugsaði þetta eða heyrði þetta og skrifaði niður.
Þetta hljómar svolítið eins og eitthvað sem Egill myndi segja, og þetta er svo satt.
Það fylgir mér töluvert minna pappírsflóð núna en þegar ég var yngri - á móti kemur að það fylgir mér stöðugt meira af hörðum diskum. Þeir taka miklu minna pláss.
In the end verð ég sennilega algjörlega rafræn.
Það verður allavega þannig þegar ég er dáin.
Tango
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010
|