Þriðjudagur, 27. júlí 2010
Ég er að fara í gegnum skápa og henda og selja stuff. Er þegar búin að selja spegil sem var í stofunni og lítinn skáp sem ég átti hérna. Nema hvað að þessi skápahreinsun hefur leitt í ljós þá óhugnanlegu staðreynd að ég á þrjú sett af froskalöppum.

I don't get it, kaupi ég þetta í svefni? Ég man bara eftir að hafa keypt eitt par af froskalöppum. Hefur þetta fjölgað sér í skápnum? Er allt þá er þrennt er? Hvað gerist ef ég sel tvö pör, bætast þá önnur tvö við?
Spurningarnar sem brenna á mér...
Í dag fór ég að ná í listaverkið sem er komið yfir sófann hjá mér og ég er svo ánægð með hvernig þetta kemur út! Dem..
