Það er þriðjudagur. Við vöknuðum rétt fyrir klukkan níu, fórum fram að bursta tennurnar saman og ég náði í tölvuna og við fórum uppí rúm aftur. Svo fórum við að skoða leiðina sem ég ætla að keyra frá okkur til Evu. Ég er að fara til hennar í heimsókn á morgun og ég get ekki beðið ég hlakka svo til að hitta hana.
Þegar við vorum búin að finna út hvaða leið ég ætti að keyra fór hann að elda morgunmat og ég spjallaði við Evu á msn. Eftir morgunmat fórum við að taka aðeins til í íbúðinni, við erum búin að vera í leti-mode undanfarna daga og hann fór að spila tónlist eins og hann gerir. Og þegar hann spilaði þetta lag, tók hann utanum mig og við fórum að dansa. Nema ég fór hreinlega að gráta - ég elska þetta lag, en ég hef aldrei lifað það áður á þennan hátt.
Ég er svo hamingjusöm og mér líður svo vel. Og ég á mann sem skilur að stundum þá þarf maður að gráta og þegar það gerist heldur hann fast utanum þig og þurrkar tárin.
Við erum að fara út að hjóla í yndislegu veðri. Skýjað, en hlýtt.
| anna | 9:28 |
comments
Dásamlega nauðsynlegt & fallegt mín kæra
Nr. 1 | posted by: Anna Sig |
13.07.2010 | 12:31:07 | [+] |