Kosturinn við að eiga börn er að þau sýna manni allskonar svona snilld. Í bílnum í dag var ég að pirrast á því að frumburðurinn svaraði ekki símanum því ég var að keyra soninn að hitta hana í bíó - og þegar ég var búin að pirrast aðeins sagði Doddi "djöfullinn, ljósið er rautt" (við vorum á rauðu ljósi) og við litum á hvort annað í bílnum og svo tókum við eitt gott AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA og fórum að skellihlæja.
Því svona er maður stundum. Það er reyndar orðið mjög langt síðan ég fór í sjoppu - en ég er viss um að ég myndi segja: Djöfull er þetta ömurleg sjoppa - og flippa út!