Þriðjudagur, 22. júní 2010
Í morgun vakti ég Dodda með því að syngja afmælissönginn og hann tók utanum mig og knúúúsaði mig. Næst vöktum við frumburðinn með því að syngja afmælissönginn og svo var haldið inní eldhús - ekki til að borða morgunmat, heldur til að horfa á Dodda taka upp pakkann sem kom frá útlöndum um daginn og Dodda er búið að klæja í fingurna að opna.
Inní pakkanum var General Grievous' Starfighter sem sló svona hressilega í gegn! Akkúrat þegar hann var búinn að taka pakkann upp hringdi útlendingurinn og óskaði honum til hamingju með afmælið.


Ótrúlegt að það séu tólf ár síðan þessi drengur kom í heiminn.
