Þriðjudagur, 08. júní 2010
Ég held að það sé eitthvað massa fótboltaseason að fara í gang, heyrist það á karlmönnum í kringum mig. Þvílík og önnur eins blessun að vera laus við þetta.
Í gærkvöldi fór ég út að hitta vinkonu mína. Byrjuðum á að fara út að borða á Fiskfélagið, fengum æðislegan mat. Þaðan og fórum á Austur. Sá staður er nú ekki kúltiveraðri en svo að þeir bjóða ekki uppá coca-cola, og þegar maðurinn birtist með pepsí bað ég hann vinsamlega að koma með eitthvað annað. Drakk seven-up með lime, sem bragðast eiginlega alveg eins og mohito. En þjónninn var mjög duglegur að segja "certainly" þegar við báðum um eitthvað - ef það var til.
Hún útskýrði fyrir mér mikilvægi þess að kunna að brjóta saman servíettur, sem er eitthvað sem ég þarf klárlega að öðlast færni í svo við ætlum að fara á námskeið saman þegar veður versnar.
Þegar ég kom heim var ég in high spirits, nema vinur minn kom online á msn og sagði hryllilega hluti. Hryllilega, hryllilega, hryllilega hluti. Hluti sem ég kannast of vel við úr samskiptum mínum við karlmenn, svo ég veit að það sem hann sagði er oft satt, þó hryllilegt sé. Þegar ég fór að sofa var ég með verk í hjartanu - literally. Ég hef ekki upplifað að fá svona líkamlegan verk áður í hjartað, var lengi að sofna og svaf ekki vel í nótt.
Verkurinn var fjarlægður í morgun, af öðrum manni - sem fylgist ekki með fótbolta.