www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tell me about it - stud
Fimmtudagur, 03. júní 2010

Ég er að breytast á gamals aldri í Sandy eins og hún var áður en hún fékk sér permanent og fór að reykja. Var að panta mér sætan kjól á netinu, því ég mun eyða hluta af sumarfríinu mínu í landi þar sem er hægt að vera í kjólum án þess að frjósa í hel.

Það stefnir reyndar allt í að ég muni eyða meira en fríinu mínu í því landi.

Þó ég sé hætt að reykja er ég ennþá á hælum.
- and I need a man, and my heart is set on you.

Um helgina spurði hann mig hvernig brúðkaup ég vil, hvaða atriði skipta mig máli. Ég sagðist þurfa að hugsa málið. Og ég er ennþá að hugsa málið.

So far er bara eitt sem mér dettur í hug, sem skiptir mig máli. Það er að hringarnir séu fallegir. Enda er þetta hringur sem ég ætla að ganga með þangað til ég drepst. Allt annað er aukaatriði. Ég myndi giftast honum í hádeginu á mánudegi hjá borgardómara ef því er að skipta. Í gallabuxum.

Og það er alveg rosalega ólíkt mér. Það er reyndar alveg rosalega ólíkt mér að vilja gifta mig in the first place. Ég er venjulega manneskja sem heldur langar innblásnar ræður þar sem ég lýsi yfir einlægu áhugaleysi mínu á að gifta mig aftur.

Ég er sennilega búin að missa vitið.

Beisik.


| anna | 20:31 |
comments

Ef eitthvað er of gott til að vera satt, er það venjulega svo.

Nr. 1 | posted by: Dr. Livingstone | 30.07.2010 | 9:31:51 | [+] |

Þetta hafa karlmenn sagt við mig, oftar en einu sinni. Svo fann ég loksins mann sem trúir að ég sé for real - sem ég er - og kemur þannig fram við mig.

Það hlaut að koma að því.

Nr. 2 | posted by: anna | 30.07.2010 | 11:55:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web