Sunnudagur, 09. maí 2010
Undanfarið er ég búin að drekka nær eingöngu brjóstastækkunar-meðal (coca-cola) af því ég féll í kók-bindindinu mínu þegar ég fór til USA og aftur þegar ég kom heim og var að reyna að koma svefninum í lag aftur. Já, ég notaði heimskulegustu aðferð - kown to man - til þess að laga svefninn: drekka örvandi drykk til að halda mér gangandi þegar ég hafði lítið geta sofið.
Ég gerði það af því það er aðferð sem ég kann og þó hún virki illa og alls ekki in the long run, þá virkar hún in the short term. Samt eiginlega ekki... bla.
Djöfull geri ég stundum stúbid hluti... ÚT með kókið!
Ég er í svo góðu skapi í dag. Ég er svöng. Þegar mér líður eins og mér líður hef ég minni lyst á mat en venjulega. Sem er ekki gott því ég hef ekkert svakalega mikla matarlyst fyrir. En ég er svöng núna og ég ætla að borða áður en ég hætti að vera það - eða gleymi því eins og ég geri alltaf.
Ég er glöð og svöng og hamingjusöm.
Er það ekki dásamlegt?
http://www.youtube.com/watch?v=AWGqoCNbsvM