www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Uppfærsla
Miðvikudagur, 19. maí 2010

Fór í litun í morgun og þess vegna fór ég út að borða í kvöld. Það er mandatory. Ef maður fer í litun og klipp og ef maður er flottur á eftir, þá fer maður þar sem aðrir geta séð hvað maður er flottur. It's the rule.

Svoleiðis verður það, þangað til ég hef efni á að hafa hárgreiðslukonu standby þegar ég þarf að vera með flott hár. En þá á ég sennilega aldrei eftir að nenna að fara út að borða aftur.

Einu sinni var ég stundum ekkert sérlega flott þegar ég kom úr litun og klippingu, en það eru orðin ansi mörg ár síðan. Það var last century dæmi og sennilega spilaði þar inní að ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég vildi hafa hárið á mér, svo það var eins og fyrir aumingja: allskonar, og ekki alltaf jafn fallegt.

Reyndar fór ég ekkert í klippingu í dag, bara litun. Samt tókst henni að blása mig það flotta að ég átti fullt erindi út úr húsi. Það er nú bara nokkuð gott.

Annars fatta ég ekki hvernig það getur verið eitthvað hár eftir á hausnum á mér því ég er búin að fara svo mikið úr hárum undanfarið. Ég er eins og sjúklingur. Fur-balls útum alla íbúð. Mætti halda að ég ætti hund. Held reyndar að hún hafi slitið restina af lausu hárunum úr í morgun þegar hún var að þvo og nudda - og blása. Ég er hissa á hvað þetta er ennþá mikið hár, þrátt fyrir afföll - ekki að ég sé að kvarta.

Myndina tók ég inná baði þegar ég kom heim, hún átti að vera af hárinu á mér, en frumburðurinn gerði svo mikið grín að mér, því hún veit að ég var að taka myndina fyrir ákveðin útlending - og þetta er útkoman. Sennilega betri mynd overall, þó hárið sé í aukahlutverki - eins og vinur minn var að segja á msn: "þessi mynd rammar ágætlega inn ástandið á þér".

IMG_7058.jpg


| anna | 22:58 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web