Sunnudagur, 30. maí 2010
Ég verð auðvitað að byrja á að óska Sjálfstæðisflokki, Framsókn, Samfylkingu og Vinstri grænum til hamingju með stórkostlega varnarsigra, miðað-við-sigra, over-all-árangur, lófaspýtingar og mögnuðustu froðu sem sést hefur í sjónvarpi á þessari öld.
Svo vil ég óska þeim Reykvíkingum sem höfðu hreðjar til að kjósa Besta flokkinn til hamingju með að gefa hinu afdankaða flokksliðinu fingurinn.
BOOOOOJAH!
Nú skelfur liðið á Alþingi og þorir ekki fyrir sitt litla líf að boða til kosninga - af því þeir vita hvað gerist þá.
Æ,æ.
Og af því að gamla pólitíska gengið virðist ekki hafa vitsmuni til að skilja skilaboðin, þó þau séu búin að fatta að þetta eru skilaboð, þá er kannski rétt að gefa ykkur þetta inn með teskeið. Skilaboðin (allavega frá mér) eru þessi: ég vil fá að kjósa fólk, ekki flokka og ég vil alvöru (ekkert ráðgefandi rugl) stjórnlagaþing sem tekur á þeim brestum sem eru á kerfinu sem þið starfið í. Ég vil að þið starfið fyrir opnum tjöldum og hættið leynimakki. Ég vil líka að fólk sem er staðið að því að misnota aðstöðu sína í embætti verði gert að segja af sér.
Frekar beisik.