Ready for consumption.
Miðvikudagur, 05. maí 2010
..eftir allt þetta sem ég er búin að segja þér [sem, ironically enough, stendur ekki í þessari færslu], hljóma ég eins og ég sé búin að missaða endanlega?
Nei, alls ekki. Þú hljómar eins og hamingjusöm kona sem er búin að finna fullorðinn karlmann sem hagar sér eins og hann sé fertugur en ekki átján ára. Mann sem vill deila lífinu sínu með þér og tekur ábyrgð á því hvernig honum líður.
Þetta er svo flippað - þrátt fyrir þessar aðstæður og allt, þá er ég sallaróleg. Og það vantar alveg stóran hluta af massa vanlíðan og óöryggi og allskonar rugli - not that I miss it.
Já þið þurfið ekki leiki eða óöryggi til að gera þetta áhugavert. Þetta er ekki heppni Anna. Þú ert búin að vinna fyrir þessu og það tók langan tíma. Það var auðvitað heppni að leiðir ykkar skyldu liggja saman, en að þú skyldir finna þetta er ekki heppni.
Hún brosti til mín og ég brosti til baka.
Ég veit. [Ég vil muna hvað mér leið vel þegar ég sagði þetta, því ég veit að þetta er ekki heppni. Og það var mjög sársaukafullt að komast á þennan stað, en það ætlar svo sannarlega að vera þess virði.] Mannstu eftir Scott, skurðlækninum sem ég hitti í fluginu á leiðinni út, sem sagði að það væri ekkert vit í öðru en að vera í New York yfir helgina?
Já
Honum finnst gaman að fara til Frakklands að smakka vín - og sagði að frakkarnir í einu vínhéraðinu hefðu verið öskuillir útí hann þegar hann lét þau orð falla að vín úr Napa Valley væru næstum jafn góð og þessi frönsku - og ég náði ekki hver munurinn á vinnslunni er - allavega, frakkarnir hálf öskruðu á hann: it can not be! Our wine has SUFFERED! That is what gives the wine it's quality, ALL THE SUFFERING!
Og það er eins með manneskjur - því það getur verið mjög sársaukafullt að takast á við sjálfan sig, eða taka út lífsreynslu sem þroskar mann - en því meiri þroska sem maður tekur út, þess betur er maður í stakk búinn að takast á við lífið og lifa því til fulls.
Ég sagði honum þetta um daginn, og ég endaði á að segja: the way I see it, we have suffered enough. And all the suffering has turned us into real quality stuff, now ready for consumption.
Hún fór að hlæja og ég sá í augunum hennar hvað hún samgleðst mér innilega. Það sem þessi kona hefur hjálpað mér, það er ekki lítið.