www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Púsluspilið
Föstudagur, 07. maí 2010

Um páskana velti ég fyrir mér hvort ég ætti að pakka púsluspilinu saman eða halda því uppi áfram - vitandi að ég myndi ekki gefa mér tíma til að setjast við það þegar ég er ein.

Ég ákvað að pakka því niður. Fór og keypti poka til að geta þá allavega pakkað því niður þannig að það væri auðvelt að koma því á sama stað og ég er á núna og halda áfram, næst þegar ég sé grundvöll fyrir því.

En einhverra hluta vegna kom ég mér ekki í gang að pakka því niður og ég er ánægð með að ég gerði það ekki. Honum finnst nefnilega gaman að púsla en það verður sennilega bið á því að þetta fari efst í forgangsröðina yfir hluti sem okkur langar að gera saman. En mér finnst gott að vita að það muni gerast þegar við höfum meiri tíma.

Ég fór uppá stól fyrir aftan hann til að taka mynd af honum þegar hann var að skoða púsluspilið, en þegar hann sá mig í speglinum, missti hann áhugann á púsluspilinu, og snéri sér að öðru. Ég náði samt mynd.

helgin.png

Annars var ég að fá fallegan tölvupóst frá Ríkisskattstjóra. Hann segir: Anna, nú ertu fallin á tíma með að skila skattskýrslunni þinni - en ef þú ert með endurskoðanda í málinu þarftu ekki að hafa áhyggjur.

Og mér finnst þetta fallega gert. Því það munaði bara frímerki að ég væri ekki búin að tala við endurskoðanda og þá hefði þetta verið það spark í rassinn sem ég þurfti.

Well done.


| anna | 12:25 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web