www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Someone to kiss, someone to miss..
Sunnudagur, 30. maí 2010

Ég er ekki að gera neitt öðruvísi, enda tók ég þá ákvörðun á sínum tíma þegar hjónabandinu mínu lauk að vera ég sjálf. Mér finnst ég best þannig. Það sem er öðruvísi er að ég fann mann sem er líka hann sjálfur og finnst ég frábær nákvæmlega eins og ég er. Ég kemst ekki yfir það - og hann kemst ekki yfir það heldur, þ.e. hvað honum finnst auðvelt að vera hann sjálfur nálægt mér.

Og þegar hann fer að versla og kemur heim úr búðinni með blóm handa mér, eða þegar hann eldar mat sem er fáránlega góður, eða þegar hann nuddar á mér axlirnar þegar ég er að vinna heima á kvöldin, eða þegar hann pælir í legói með dodda eða þegar hann ræðir við frumburðinn um hennar framtíðarplön, eða þegar hann heldur á pokunum úr búðinni upp stigana, eða þegar hann situr með mér heilt kvöld heima hjá mömmu að horfa á kosningasjónvarp - af því hann veit að það skiptir mig máli, eða þegar hann tekur utanum mig og hallar mér afturábak og kyssir mig (sem hann gerir)... ég gef frá mér sæluandvarp ca fjórtán sinnum á dag. Hann er svo góður við mig þessi maður.

Það er ekki langt síðan mamma sá ástæðu til að útskýra fyrir mér í töluvert löngu máli að ég gæti gleymt því að finna mann sem er "góður" við mig. Ég væri orðin gömul og þannig menn væru löngu farnir af markaðnum og búnir að finna sér konu.

Ég leyfði henni að klára áður en ég sagði henni að fyrir mér væri þetta ófrávíkjanleg krafa og ef ég fyndi ekki mann sem er góður við mig, þá verð ég bara ein. Og það er allt í lagi. Mamma hristi höfuðið yfir þrjóskunni í aldraðri dóttur sinni - en my god. Að gera kröfu á að einhver sé góður við þig er í raun það sama og að gera kröfu á að viðkomandi búi yfir andlegu og líkamlegu heilbrigði! Og ég ætlaði ekki að sætta mig við neitt minna en það.

Og núna þarf ég þess ekki.

Hann var löngu hættur að reikna með að hann myndi upplifa eitthvað svona, en segir að ég hafi verið biðinnar virði.

Það er hann líka og vel rúmlega það.


| anna | 22:38 |
comments

Samgleðst smile

Nr. 1 | posted by: baun | 31.05.2010 | 21:31:36 | [+] |

Takk Baun smile

Nr. 2 | posted by: anna | 31.05.2010 | 21:48:24 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web