www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mistök leiðrétt
Sunnudagur, 09. maí 2010

"Þegar mér tókst að vera heiðarlegur gagnvart sjálfum mér fór mér líka að takast að vera heiðarlegur og hreinskiptinn við annað fólk. Við það gufaði upp sífelld þörf mín til að setja mig skör ofar en viðmælendur mínir og sjálfsmynd mín réttist af. Óöryggi mitt, ótti og vanmáttarkennd tóku að rjátlast af mér. Hrokinn dvínaði. Sjálfselskan minnkaði eilítið. Ég fór að eiga jafningjasamskipti við annað fólk."

Öll greinin og meira eftir sama höfund.

Ég átti samskipti við hann í fyrsta skipti í gær, þegar hann sendi mér póst og sagðist vera fúll yfir því að ég hafði ekki sett nafnið hans við svarið sem hann sendi í movie hall of fame.

Subjectið á póstinum var: "Nú er ég fúll." Þegar ég var búin að lesa póstinn fór ég á síðuna mína og sá að þetta var rétt. Ég hafði gert mistök og sett eitt nafnið inn tvisvar en sleppt hans nafni. Ég hefði verið massa fúl í hans sporum. Ég leiðrétti mistökin strax og sendi póst til baka þar sem ég sagði honum að ég hefði gert mistök og að mér þætti þetta leiðinlegt. Bað hann afsökunnar. Hann sendi mér svar um hæl og sagðist ekkert hafa verið svo fúll, meira "Hey!?", og að hann væri búinn að fyrirgefa mér.

Nema hvað. Ég er forvitin og hann skrifar blogg. Núna, þegar ég er búin að lesa bloggið hans, verð ég að viðurkenna að þetta atvik hefur staðfest gildi þess að gera mistök annað slagið. Ég er eiginlega svolítið ánægð með að ég gerði þessi mistök og að hann confrontaði mig með það. Því annars hefði ég sennilega ekki fundið bloggið hans og lesið.

Og mér finnst það sem hann skrifar verulega gott:

"Tilfinningavitund er einn hornsteinninn að velgengni í lífinu, og nauðsynlegur þáttur ef viðkomandi vill rannsaka hvað mótar viðhorf hans til lífsins og fyrirbrigða þess. Grundvöllurinn til þess að geta breytt viðhorfi sinu er að vita hvaða tilfinningar liggja að baki viðhorfinu, meta réttmæti þeirra og gagnsemi, og kjósa í framhaldinu að temja sér nýtt samhengi tilfinninga sem útgangspunkt fyrir breytt viðhorf."

Öll greinin


| anna | 15:14 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web