www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kona með fortíð
Föstudagur, 21. maí 2010

Best að come clean.

Ég er ekki Anna Helgadóttir, Hagamel 53, 107, Reykjavík.

Ég er Catherine Alison Elliott, flat 3, Kipling Mansions, Murray Road, London, West nine. Ég fæddist 29. febrúar, 1952. Snilldin við að eiga afmæli á þessum degi er að maður eldist miklu hægar en fólk sem á afmæli árlega.

Þegar ég var 26 ára átti ég í eldheitu ástarsambandi með Sean Connery, sem ég endaði af því hann hrýtur eins og vélsög á nóttunni. Og það eru takmörk fyrir því hvað maður leggur á sig fyrir gott kynlíf. Auk þess drakk hann eins og svampur og var hrikalega matvandur. Nema þegar ég hætti með honum fékk ég aðalhlutverk í mynd sem var ekkert minna en stórkostleg. Hún var hinsvegar klippt í tætlur þannig að söguþráðurinn, sem átti að vera um mann sem tekur upp puttaling og verður ástfanginn - eftir klippingu virtist myndin vera um endingu alteratora í bifreiðum. Sem var synd. Stórleikur sá sem ég sýndi í myndinni var allur klipptur burtu og seinna komst ég að því að maðurinn sem klippti myndina var hárgreiðslumaður og hafði aldrei komið nálægt því að klippa bíómyndir áður. Ég var með mikið hár á þessum tíma.

Á árunum 1981 - 1986 var ég njósnari á vegum KGB og veit allskonar, til dæmis er lagið Nikita samið um ungan mann sem hraut líka. Elton setti það ekki fyrir sig enda hrýtur hann sjálfur eins og loftbor.

Árið 1987 kom ég til Íslands frá Bandaríkjunum og laug að einhverju fólki sem ég hitti á flugvellinum að ég væri dóttir þeirra og hefði verið í bandaríkjunum sem skiptinemi í ár. Með instant dáleiðslutækni sem ég lærði hjá KGB tókst mér að sannfæra þau um þetta. Ég tók upp nafnið Anna Helgadóttir og hef búið, mest megnis, á Íslandi síðan. Nema þegar ég fór í tvær vikur til Belgíu eitt árið að aflífa einhverja lopasokka, en mig vantaði líka pening þá.

Ég hélt að ég væri laus við þetta fyrra líf mitt og það myndi aldrei koma til tals, en voru þá ekki einhverjir sokkar sem grófu upp plaggatið fyrir my magnum opus (takið eftir að það er ekkert plaggat til með myndinni á imdb - það er ekki tilviljun!) og negldu það upp á Hamborgarabúllunni B5! Nema góður vinur minn, hann Soffi, sá þetta plaggat í dag, uplódaði því á facebook og taggaði mig á helvítis myndinni! Ég get ekki verið reið við Soffa, hvernig átti hann að vita af þessu?

Af þessum sökum hef ég ákveðið að drop the act og come clean.

Ég hlakka ekki til að útskýra þetta fyrir unglingnum (41) sem ég er að deita. Kannski tel ég honum bara trú um að þetta sé allt lygi og ég sé í alvöru Anna Helgadóttir, fædd 1971. En þá þarf ég að rifja upp hvernig það er gert..


| anna | 0:13 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web