Föstudagur, 21. maí 2010

Ég er í skýjunum. Var að fá þessa æðislegu hrafna, sem Úlfar Sveinbjörnsson sker út. Hrafn er uppáhalds fuglinn minn og lengi langaði mig að eiga einn sem gæludýr, en hætti við þegar ég tók þá hugsun lengra og áttaði mig á því að dýrinu myndi aldrei líða vel lokað í búri eða íbúð. Ég sé ekki hvað er varið í að eiga gæludýr ef því líður ekki vel. En nú á ég tvo og mér finnst þeir svo flottir!
Hann Úlfar er algjör snillingur og sker út alla íslensku fuglaflóruna og þeir eru alveg ótrúlega flottir hjá honum. Ég held að það séu reyndar ekki komnar myndir af þeim á heimasíðuna hans en hér er hún samt: www.ulli.is
Nú þarf ég bara að ákveða hvað þeir eiga að heita.
(Mér finnst Huginn og Muninn of standard, en það er vissulega klassískt)
----
Jón og Gulli? ha ha ha
Pú og Pa hljómar nokkuð vel.
Hægri og Vinstri hljómar líka vel.
Statler og Waldorf væri snilld.
Eddie og Richie, steinliggur auðvitað.
Harrý og Heimir has a ring to it.
Skafti og Skapti er nokkuð gott.
Geir og Grani gæti virkað.
Pat og Mat, ég þekki þá reyndar bara undir samheitinu: Klaufabárðarnir