www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
evil - live
Þriðjudagur, 11. maí 2010

Það kemur hrukka á ennið á mér, eða eiginlega við vinstri augabrúnina, þegar ég er að husga um hvernig á að leysa eitthvað sem er ekki alveg augljóst hvernig á að leysa - eða hægt að fara margar leiðir til þess.

Sá þessa hrukku í baksýnisspeglinum í bílnum í dag þegar ég var að keyra aftur í vinnuna eftir fundinn sem ég átti í hádeginu. Ég vona að hún verði djúp með árunum. Hrukkur eru góðar, þær segja manni hvernig maður er. Þessi hrukka gerir mig alvarlega en samt ekki þannig að ég verði ógnvekjandi.

Á fundinum hitti ég Jón. Hann er kallaður "erfiði Jón" stundum. Sem er skemmtilegt því ég er einmitt stundum kölluð "erfiða Anna".

Það sem gerir mig og Jón erfið er að við sjáum hluti sem virka - en virka seint og illa, og við spyrjum af hverju það megi ekki gera þessa hluti á annan hátt - sem væri auðveldara, einfaldara og betra fyrir alla þegar upp er staðið. Við erum erfið vegna þess að það er alltaf auðveldara in the short term að halda sig við það sem fólk kann að gera, þó það virki ekki vel.

Við erum fólk sem knýr fram breytingar þar sem er stöðnun. Þar sem er stöðnun, er ekkert líf. Allavega ekki líf sem mig langar að lifa. Við erum vonda fólkið.

Og þó við séum vonda fólkið í augum margra, þá finnst mér við massa kúl.

I've found my niche in the realm of evil.

Þvílíkur léttir. Ég vissi alltaf að ég væri vond manneskja.
Bara ekki hvernig.


| anna | 13:26 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web