www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekki frelsuð - en samt..
Laugardagur, 08. maí 2010

Að leyfa sér að verða ástfangin er leap of faith í mínum huga og sennilega ekki ósvipuð lífreynsla og því að frelsast.

Það er meiri áhætta að leyfa sér að verða ástfangin en að ákveða að frelsast. Þegar fólk frelsast þá opnar það hjarta sitt fyrir guði, trúir að hann elski það, en ég trúi ekki að guð sé til svo ég sé ekki hvernig hann á að geta elskað mig. Ég efast hinsvegar ekkert um að hann myndi gera það ef hann væri til.

Ég trúi að óeigingjarn kærleikur sé til, því ég hef fundið hann í sjálfri mér svo ég veit að hann er þar. Ég trúi líka að hann finnist í öðru fólki og ég trúi að hann sé grunnurinn að þeirri ást sem ég hef viljað finna. Því ást er ekki það sama og losti eða gífuleg aðdáun.

Nú fer það venjulega ekkert framhjá manni ef einhver frelsast. Bara orðasamhengið "að frelsast" segir sína sögu, þetta virðist magnþrungin lífsreynsla. Það er alveg eins með ástina. Þegar einhver frelsast er hann í raun að sleppa lausum kærleikanum sem er í hjartanu, í þeirri trú að það sé eitthvað yfirnáttúrulegt sem ætlar að elska hann til baka. Þegar þú verður ástfanginn sleppir þú lausum kærleikanum sem er í hjartanu í þeirri trú að önnur manneskja elski þig til baka, sem er í raun ekki jafn skynsamlegt og ég kem að því á eftir - snýst um vald.

Ef við gefum okkur að ég hafi rétt fyrir mér og að guð sé ekki til, getur hann ekki gert neitt, hvorki gott né illt. Allt sem guð "gerir" er túlkunaratriði þess einstaklings sem trúir á hann, svo þeir sem trúa að guð elski þá geta tekið allt sem þeir vilja sem tákn um þessa ást hans. Allt vald sem þú gefur guði með því að trúa á hann er í raun ennþá í þínum höndum, þó það sé ekki það sem þú trúir. Ef einhver er góður við þig er það guð að elska þig og ef þér gengur vel er það guð sem er að standa með þér. Ef þér gengur illa er guð að kenna þér eitthvað svo þú fyrirgefur honum, o.s.frv.

Munurinn er að þegar þú trúir á að önnur manneskja elski þig gefurðu valdið frá þér, í hendurnar á öðrum einstaklingi - sem er í þokkabót mennskur og fucked up eftir því. Það er svo í höndum þess einstaklings að láta þig finna að þú sért elskaður og metinn - að standa með þér, líka þegar það gengur ekkert rosalega vel og segja þér þegar þú ert að haga þér eins og asni, til að hjálpa þér að verða betri manneskja. Þú gefur þessum einstaklingi vald til að fara eins nálægt því að murka úr þér lífið og hægt er, án þess að þú gefir upp öndina og treystir honum til þess að gera það ekki. Ef þú lendir á fávita sem gerir þér ekkert gott er það í þínum höndum að losa þig, það gerir það enginn fyrir þig.

Guð er the safe bet í þessu samhengi, no contest.

Trúir þú að einhver annar en guð hafi áhuga á að elska þig eins og þú ert?

Það er eitt að trúa að goðsagnavera geti elskað þig og krefst suspension of disbelief, það er allt annað að trúa að önnur manneskja geti það. Sjái hver þú ert, kosti og galla og elski þig þrátt fyrir allt. Til að trúa því þarftu helst að missa vitið fyrst. Það virðist tryggja hámarks árangur. (það tryggir reyndar líka hámarks árangur hjá þeim sem trúa á guð)

Á mínum aldri (+/- 40) eru allar líkur á að aðrir hafi misnotað þetta vald í fortíðinni og jafnvel dundað sér við að murka úr þér sálarlífið hægt og hægt - bara af því þeir gátu það. Svo þú ert verulega meðvitaður um hvað þetta getur verið rosalega sárt og að þetta er töluverð áhætta. Og ef svo ólíklega vill til að þú ákveðir að taka skrefið samt, þrátt fyrir þessa áhættu, þarft þú meira en nokkuð annað að finna solid ground þar sem þú stígur niður.

Ég get ekkert vitað fyrirfram hvað gerist, það er ekki til handrit sem ég get flett upp í til að vita það - en þegar ég tók þetta skref og steig niður vitandi að ég gæti hrapað, fann ég solid ground. Rock solid. Fyrir það er ég alveg ofboðslega þakklát.

Af því hann er manneskja ætla ég ekki að segja að ég sé frelsuð.
En ég er eitthvað annað orð.. mörg jafnvel..

.. djúpt, heitt, bjart, gott, einlægt, traust, fallegt, gleði, þakklæti.

Ég er hinsvegar ekki alveg búin að missa vitið þó baráttan við að halda því sé farin að harðna. Þann dag sem dagdraumar mínir fara að snúast um að þvo þvottinn af honum, er ljóst að ég hef tapað í þeirri baráttu. Það þarf samt ekki að vera svo slæmt ef hann sér um að elda..


| anna | 18:26 |
comments

Yndislegt. Ég samgleðst þér innilega. Njóttu vel...

Vona líka að ég upplifi þessa tilfinningu sjálf einn daginn. smile

Bon courage!

Nr. 1 | posted by: tótalí | 14.05.2010 | 14:43:27 | [+] |

Takk tótalí smile

Þetta er fan-fucking-tastic!

Nr. 2 | posted by: anna | 14.05.2010 | 18:39:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web