www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Better together
Fimmtudagur, 20. maí 2010

Eitt af því sem mér hefur þótt erfitt við að vera einhleyp er að hafa engan til að deila sigrum mínum og ósigrum með. Eiginlega hefur það verið erfiðast af öllu, því ég get alveg séð um mig sjálf þannig lagað. En ég get ekki speglað sjálfa mig og veitt sjálfri mér stuðning og hrós eins og önnur manneskja sem skiptir mig máli getur. Af því ég er ekki klofinn persónuleiki.

Þegar ég byrjaði að vinna hjá Marel var hringt í mig frá human resource deildinni og ég var beðin um símanúmer hjá þeim sem ætti að hringja í ef eitthvað kæmi fyrir mig t.d. í ferðalagi á vegum vinnunnar. Next of kin. Ég hafði ekki pælt í þessu mjög lengi og í þessu símtali áttaði ég mig á því að jú, ég á foreldra og systkini en ég á samt ekki next of kin, og ég vissi ekki hverju ég átti að svara. Ég bað um að fá að hringja til baka, þegar ég væri búin að finna út hvern væri heppilegast að hringja í. Ég bara vissi það ekki.

Vildi ég láta hringja í mömmu eða pabba? Eiginlega ekki. Ég endaði á að hringja í fyrrverandi eiginmanninn og spyrja hvort honum þætti óþægilegt að vera þessi contact aðili - sem myndi þá sjá um að hringja í fjölskylduna mína og segja þeim að ég væri dauð, eða whatever. Ég veit ekki af hverju, en mér fannst eðlilegra að faðir barnanna minna myndi vera látinn vita fyrst. Hann hefur snertiflöt við alla hina sem tengjast mér. Hann samþykkti að taka þetta hlutverk að sér, en lét mig lofa að gera allt sem í mínu valdi stendur til að koma í veg fyrir að hann fengi svona símtal. Ég lofaði því.

Þegar maður nær áfanga í lífinu, einhverju sem maður hefur unnið lengi að, þá er einhvernvegin ekkert varið í sigurinn ef maður hefur engan til að deila honum með. Ég hef staðið mig að því að vinna sigra, segja "jessss" í hálf-hljóði heima hjá mér, og upplifa svo þetta antiklimax. Það einfaldlega vantar þennan einhvern sem maður talar við og deilir gleðinni með. Einhvern sem segir "djöfull er ég ánægður með þig!" Einhvern þér finnst gott að sé ánægður með þig, af því það skiptir þig máli. Sem betur fer hef ég átt góða vini sem hafa deilt með mér gleði og sorgum og reynst mér alveg ofboðslega vel, en það er samt aldrei eins og gagnvart maka eða elskhuga. Þegar þú átt maka eru þínir sigrar hans sigrar og öfugt. Af því eruð í sama liði. Ef þetta er nokkurnvegin heilbrigt samband.

Tekurðu eftir að þú hringir alltaf í einhvern einn fyrst þegar eitthvað gerist sem þú þarft að deila með öðrum? Sá aðili sem þú hringir í fyrst, er sá aðili sem skiptir þig mestu máli. Hann hefur mest vægi.

Í dag fékk ég símtal, frábærar fréttir. Sigur.

Hann hringdi í mig fyrst.


| anna | 23:10 |
comments

smile

Nr. 1 | posted by: Kristín | 21.05.2010 | 6:35:26 | [+] |

smile Yndislegt

Nr. 2 | posted by: Elma | 21.05.2010 | 9:34:47 | [+] |

Já þetta er yndislegt smile

Nr. 3 | posted by: anna | 21.05.2010 | 16:51:04 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web