www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skyldulesning
Laugardagur, 24. apríl 2010

"Nú ætti að blasa við öllum hugsandi mönnum, að við getum ekki haldið áfram á sömu braut. Við verðum blátt áfram að hugsa grundvöll tilveru þjóðarinnar upp á nýtt. Það verður ekki gert með neinni sýndarmennsku, smáskammtalækningum eða pólitískum heftiplástri. Þegar stjórnmálamenn bregðast, verður þjóðin sjálf að taka í taumana,” skrifar Njörður.

Göngum nú einu sinni hreint til verks. Hreinsum rækilega til í rústum þess lýðveldis sem hrundi - og stofnum svo nýtt lýðveldi með nýrri stjórnarskrá."

Meira

Ég þarf svo á því að halda að við gerum þetta, svo ég geti hætt að hugsa um að flytja frá Íslandi. Það verður alltaf fólk sem hugsar "við getum ekki", en við þurfum ekki og við eigum ekki að hlusta á þannig fólk. Og ég trúi ekki að þannig fólk sé í meirihluta á þessu landi.

Ég bara trúi því ekki.


| anna | 12:35 |
comments

Ég ætlaði einmitt að skrifa inn komment einhversstaðar á síðnua hjá þér - er þetta ekki það sem þú ert búin að tala um lengi? En þá var þegar færsla komin....

How to nike it?

Nr. 1 | posted by: Outlaw | 24.04.2010 | 12:56:56 | [+] |

Jú, ég er búin að tala um þetta lengi, hugsa þetta non stop og þetta er það sem ég þarf til að vera hér áfram.

Ef ekkert breytist er Ísland ekki land sem ég vil tilheyra. Það er ekkert leyndarmál.

Nr. 2 | posted by: anna | 24.04.2010 | 13:11:22 | [+] |

„Ef ekkert breytist er Ísland ekki land sem ég vil tilheyra.“

Einmitt það sem ég hef verið að hugsa ... hvað ætli það séu margir með sömu hugmyndir?

Nr. 3 | posted by: Líba | 24.04.2010 | 13:19:39 | [+] |

Það er eiginlega núna sem er lag.

Staðreyndir farnar að tala sínu máli (rannsóknarskýrslan).

Skil þig mjög vel hvað búsetuna varðar.

Nr. 4 | posted by: Outlaw | 24.04.2010 | 13:23:03 | [+] |

Það eru margir með þessar hugmyndir og málið er að það þarf ekki Alþingi til að setja saman nýja stjórnarskrá. Ef nógu stórt hlutfall þjóðarinnar tekur sig saman og gerir þetta eða styður þetta, þá verður útkoman gilt plagg.

Það sem þarf til er að fólk átti sig á að við höfum valdið til að breyta þjóðfélaginu sem við búum í. Spáðu, ef nógu margir skilja það þá er þetta komið. Og traust. Einhvern til að leiða þetta sem fólk getur hreinlega trúað að sé ekki að gera þetta af annarlegum hvötum.

Ég veit Árni, nú er lag. Og þar sem ég er skráður handhafi lénsins stjornlagathing.is veit ég að það er margt að gerast svo ég er í startholunum. Og ef ég fæ einhverju um þetta ráðið, þá verður þetta það sem þjóðin gerir. Það þarf ekki að úthella neinu blóði í þeirri byltingu sem ég sé fyrir mér.

Nr. 5 | posted by: anna | 24.04.2010 | 13:27:07 | [+] |

Vandinn er að það eru of margir sem ekki hlusta, eða ekki skilja.

Samt hef ég heyrt í nokkrum sem studdu ríkisstjórnirnar (þá nýju og/eða þá gömlu) næstum því í blindni - þeir hinir sömu eru, sem betur fer, farnir að efast um ágæti þeirra.

Sé til hreyfing sem vill láta hjólin snúast/almennur póstlisti máttu gjarnan bæta mér á hann.

Nr. 6 | posted by: Árni | 24.04.2010 | 14:10:49 | [+] |

Nei. Stærsta vandamálið er að fólk trúir almennt ekki að þetta sé hægt. Og það veldur því að það hlustar ekki og skilur ekki. Lack of faith. Það fer alltaf að horfa á flokka og fyllist vanmætti þegar það hugsar um breytingar því fólkið sem vill viðhalda kerfinu hefur svo háværa rödd og auðveldan aðgang að fjölmiðlum.

Ég get sagt þér, ef fólk myndi skilja að já, þetta er hægt. Þó þú sért að vinna með svörnum sjálfstæðismanni en ert vinstri grænn, því það skiptir engu máli hvar þú ert í pólitík. Það skiptir engu máli.

Við vorum nokkur sem fórum svo nálægt því að setja á laggirnar stjórnlagaþing, vorum komin með húsnæði. Það er eiginlega ótrúlegt þegar ég hugsa útí það eftirá - en það var engin grundvöllur til að gera það þá vegna þess að kosningarnar voru komnar í gang með öllu því fjaðrafoki svo við settum það á ís.

Og ég sver.. ef ég ætti peninga myndi ég hætta að vinna og fara í herferð um allt Ísland, til að þjappa fólki saman og gefa því trú á að þetta sé hægt. Og fá fólk til að taka þátt í að semja og samþykkja nýja stjórnarskrá fyrir þjóðina okkar.

Og ef ég vinn the jackpot í víkingalottói (ég spila eina röð í áskrift) þá er þetta það sem ég myndi eyða vinningnum í, þetta er það eina sem ég myndi vilja eyða peningunum í. Já.. og kaupa nýjar felgur á bílinn hehehe

Þegar listi hefur verið settur samann skal ég bæta þér á hann Árni. En þú getur byrjað að hjálpa í dag með því að tala um þetta við fólk sem þú hittir. Tala við það um að já, við getum þetta ef við leggjumst saman á eitt.

Vegna þess að þetta mun gerast.

Nr. 7 | posted by: anna | 24.04.2010 | 15:28:32 | [+] |

Það er eðlilegt að fólk þurfi að skilja stjórnlagaþing áður en hægt er að búa til trú á það.

Ég er ekki viss um að é skilji sjálfur út á hvað málið gangi.

Ég sé stjórnlagaþing sem leið til þess að búa til nýjan grundvöll og samfélagssáttmála.

Af hverju?

Staðreyndirnar tala sínu máli, m.a. rannsóknarskýrslan, en svo verður sjálfsagt einhver (vonandi) úlfaþytur þegar ákærur sérstaks saksóknara fara að birtast.

Það er ekki hægt að byggja upp þjóðfélag á strúktur og gildum sem setti það á hausinn.

Hvernig?

Úff, þetta er stóra spurningin. Um tipping point.

Hringferð (á krómfelgum!) væri snjöll hugmynd.

Gangi ykkur vel!

Nr. 8 | posted by: Árni | 24.04.2010 | 16:20:13 | [+] |

Það er nú heila málið, því þetta er ekki rocket science. Þetta er common sense.

Að setja á laggirnar stjórnlagaþing er ekki jafn erfitt og það hljómar - vegna þess að þetta eru reglur fyrir okkur og það þarf ekki lögfræðinga til að búa til reglurnar. Það þarf fólk sem ætlar að fara eftir þeim til að ákveða reglurnar.

Þetta er eins og þegar ég settist niður með börnunum mínum til að ákveða með þeim hvenær þau ættu að fara að sofa á kvöldin. Þau tóku þátt í ákvörðuninni. Það hefur aldrei verið neitt vandamál fyrir mig að láta þau fara eftir þessu - af því þau tóku þátt í að ákveða það sjálf. (það er reyndar orðið langt síðan og ég þyrfti að endurskoða þetta)

En þetta snýst um að ef við ákveðum þetta saman þá eru meiri líkur á að við förum eftir reglunum og sýnum ekki umburðalyndi gagnvart fólki sem ætlar að spila sóló og gera það sem því hentar.

Framkvæmdin er ekkert flókin, við gerðum þetta á wiki síðu síðast. Það er líka hægt að gera eitthvað svona:

a) láta fólk skrá sig til þátttöku á netinu (merkir að þú ert tilbúinn að leggja á þig vinnu í sjálfboðavinnu við fara á einhvern stað, taka þátt í hópastarfi og ræða og setja saman tillögur)

b) láta fólk skrá sig til að kjósa um þetta (merkir að þú getur tekið þátt með því að kjósa um niðurstöðurnar og jafnvel haft áhrif á tillögur í gegnum netið

c) búa til lista yfir undirstöður stjórnarskrár (hægt að hafa aðrar stjórnarskrár til viðmiðunar)

d) draga út nöfn sem hafa skráð sig til þátttöku, x marga einstaklinga sem er skipt í hópa og fjalla um hvern undirstöðuflokk stjórnarskránnar, t.d. yfir helgi

e) hver hópur er með ritara sem tekur saman niðurstöður, þeim er póstað á netið þar sem hver sem er getur gert athugsasemdir - eina reglan er að þú verður að vera málefnanlegur - ég vil að fólk geti kommentað nafnlaust (meira að segja Davíð Oddsson og Jón Ásgeir gætu haft uppbyggilegar tillögur en það hlustar engin ef þeir koma fram undir nafni)

f) kosið um niðurstöðurnar á netinu

g) endurtakist 3x eða þangað til afgerandi niðurstaða fæst úr kosningu

h) ný stjórnarskrá er orðin til, sem allir Íslendingar höfðu aðstöðu til að taka þátt í að móta.

i) lögfræðingar taka til við að breyta reglum og öðru og hér er mikilvægt að hafa þetta í huga: http://www.ted.com/talks/alan_siegel_let_s_simplify_legal_jargon.html

Ég er búin að heyra öll mótrökin og allar ástæðurnar fyrir því af hverju þetta á _ekki_ að vera hægt - en - við gerðum þetta nú samt á wiki síðu Árni. Fólk var málefnanlegt, fólk sem var það ekki pillaði sig í burtu af því það fann strax að það nennti enginn að hlusta á eitthvað röfl eða flokkarugl á þessum vettvangi.

Stofnuð 13. janúar 2009 og í mars sama ár voru komnar þessar niðurstöður: http://egill.blog.is/blog/egill/entry/817553/

Lestu þetta og segðu mér að þetta sé ekki ágætis grunnur sem fólk úr öllum flokkum gæti kvittað undir. Svo þarf bara að fara eftir þessu - og þá kemur þetta með að sem flestir taki þátt inní. Ef þú tókst þátt í að ákveða eitthvað er líklegra að þú farir eftir því. Það er staðreynd.

Þeir Íslendingar sem eru of latir eða sérhlífnir munu ekki taka þátt, en trúir þú að þeir séu meirihluti þessarar þjóðar?

Þetta er eina leiðin sem ég sé færa til að koma á einhverri sátt við það sem hefur gerst hérna og hjálpa fólki til að finna nýjan grunn til að byggja á - saman. Þetta yrði þjóðarsáttmáli.

Nr. 9 | posted by: anna | 24.04.2010 | 17:09:04 | [+] |

Það er hægt að gera mjög margt, sbr. það sem þú nefnir að ofan. Aðferðin leyfir amk. að mörg sjónarmið komist að (líka þau sem maður er ekki sammála).

Er ekki stærsti þröskuldurinn í augnablikinu að fá Stjórnlagaþing inn í dagatalið?

Hver er triggerinn, hvernig verður því komið á? Undirsskriftir? Mótmæli? Getur Alþingi sjálft tekið frumkvæði?

Nr. 10 | posted by: Árni | 26.04.2010 | 18:51:55 | [+] |

Síðast þegar ég vissi vildi Alþingi halda ráðgefandi stjórnlagaþing - sem merkir að það hefur ekkert vald.

Nr. 11 | posted by: anna | 26.04.2010 | 19:00:00 | [+] |

Samstaða og sáttmáli.

Ekki kemur það á óvart að flokkakerfið skuli vera á móti því.

Það vantar hinsvegar 'tipping point'.

Nr. 12 | posted by: Árni | 26.04.2010 | 19:07:58 | [+] |

Ef manneskja eins og Vigdís myndi bakka þetta upp, ef háskólarnir þrýsta á þetta, kennarar og nemendur, þá sé ég fólk koma með - en - ég held að það sé verulega mikilvægt að engin sem þekktur er fyrir afskipti í pólitík komi nálægt þessu.

Það verður að vera trúverðugt fólk sem stendur að þessu.

Nr. 13 | posted by: anna | 26.04.2010 | 19:14:25 | [+] |

Little changes, big effect.....

Bls. 29 nefnir þrjú lykilatriði.

Nr. 14 | posted by: Árni | 26.04.2010 | 19:15:20 | [+] |

Ég veit ekki hvað þarf til. Á eyjunni er fólk ennþá að rembast við að kenna hinum flokknum um.

I don't get it.

Nr. 15 | posted by: anna | 26.04.2010 | 20:17:59 | [+] |

Einhvern veginn finnst mér svona þurfi að geta gerst án íhlutunar stofnanna, stjórnmálaflokka, eða skipulagðra (hagsmuna)hópa.

Að fólk gangi út á götu og segi: ég er búin(n) að fá nóg.

En þetta er hægt.


Nr. 16 | posted by: Árni | 26.04.2010 | 20:33:36 | [+] |

http://vimeo.com/2693546

Nr. 17 | posted by: anna | 26.04.2010 | 21:40:56 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web