www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Save all your kisses..
Mánudagur, 26. apríl 2010

wt003400017115.pngÉg taldi ellefu Hershey's Almonds súkkulaðistykki uppúr töskunni og er hálf svekkt útí sjálfa mig yfir að hafa ekki komið með fleiri heim.

Það er ekki að mig langi að borða þau. Mér líður bara betur að vita af þeim hérna. Þetta er svona eins og að hafa life insurance, nema þetta er chocolate insurance.

Allar líkur eru á að þau verði ónýt áður en ég borða þau af því ég kem þeim fyrir inní skáp og svo gleymi ég þeim. Mér finnst samt eins og heimurinn sé aðeins fallegri á meðan þau eru inní skáp. En af því ég á börn verður það skápur sem er læstur. Þetta er eins og að búa með ryksugum. Meina.. þau eru þegar búin að klára rúmt kíló af Hershey's kossum! Ég borðaði ca fimm kossa af þessu kílói!

Ég hefði auðvitað átt að koma með fimm kíló af kossum heim og læsa þá alla inní skáp.

Hersheys-Kiss-001.jpg


| anna | 18:28 |
comments

Þú hefur engan áhuga á Hershey´s súkkulaði og vilt ekki eiga það. Þetta er bara meinloka sem varð til hjá þér á meðan þú bjóst með manni sem borðaði þetta súkkulaði en lét annars helst með áfengi eins og þú lætur með þetta súkkulaði núna.

Gefðu fyrrverandi eiginmanni þínum súkkulaðið.

Give in to your cravings. Give in. And may I say, what a smashing blouse you have on.

Nr. 1 | posted by: Tóti | 27.04.2010 | 1:31:06 | [+] |

Ef ég léti með þetta súkkulaði eins og þú lést með áfengi, hefði ég borðað það áður en ég náði að pakka því ofaní tösku.

Ég skal hinsvegar gefa þér eitt fyrir að kynna mig fyrir þessum dásemdum á sínum tíma. Ég er hvort sem er komin með ógeð á Hershey's í bili. Borðaði nóg af því á meðan ég var í usa (2 stk).

Nr. 2 | posted by: anna | 27.04.2010 | 9:52:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web