Sunnudagur, 18. apríl 2010
Byrjaði daginn á Time square, næst var það Soho, næst Chinatown og því næst Litle Italy. Ég er búin að sjá svo mikið í dag að ég held að sjónminnið sé byrjað að leka útum ennisholurnar á mér.
Ákvað að borða frekar á ítölskum stað en kínverskum og það varð uppi fótur og fit á veitingastaðnum í Litle-italy þegar ég sagði að ég þyrfti borð fyrir einn. Þeir snérust í kringum mig eins og ég væri drottning. Þegar ég fékk matseðilinn sagði ég þjóninum að ég gæti ekki borðað mjög mikið (skammtarnir í usa eru rugl) og bað þá um að velja rétt sem væri meira eins og evrópsk matarstærð. Sá sem tók niður pöntunina brosti skilningsríku brosi og mælti með mat fyrir mig. Ég fékk það allra besta pasta sem ég hef á ævinni smakkað, humar og krabbafyllt pasta í sósu sem var himnesk.
Nema að þeir vöktu svo mikla athygli á því að ég væri þarna ein með því að snúast í kringum mig að það kom til mín maður og bauð mér út í kvöld, áður en ég var búin með matinn. Ég afþakkaði boðið.
Ég er ekki búin að taka mikið af myndum hérna og mest á símann svo þær eru sennilega frekar lélegar. Ég lagði ekki mikið uppúr því að taka myndir hérna hvort sem er. Ég fann það sem ég ætlaði að kaupa fyrir krakkana (líka byssur og sverð en ég keypti samt ekki svoleiðis).
Öll flug til ameríku eru á áætlun og ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess að flug frá bandaríkjunum falli niður. Ég vona að ég komist heim annað kvöld því ég sakna krakkanna. Hlakka til að knúsa þau í bak og fyrir, þó þau verði reyndar á leiðinni í skólann þegar ég kem innúr dyrunum. Það er búið að segja mér að ég verði að sofa þegar ég er komin heim, annars verði ég ónýt í marga daga. Ég trúi því vel, ég er ennþá hálf ónýt síðan ég kom til usa.
Brunaliðið er búið að keyra framhjá mér þrisvar á meðan ég var einhversstaðar á röltinu. Mér finnst aðdáunarvert hvað allt virðist ganga upp hérna. Löggan líka með þvílíkt sírenuvæl. Alltaf eitthvað í gangi, nema á morgnanna þegar ég fer út rétt um níu. Þá er ekki mikið um að vera.
Var að fatta að ég hef ekki drukkið neitt kók síðan ég fór frá Des Monies. Bara vatn og ávaxtasafa.
Ég fór í búð á 5th avenue í gær og stóð fyrir aftan mann sem lyktaði svo vel að ég gaf frá mér lága stunu. Ég var ekki fyrr búin að gefa frá mér þetta hljóð en ég fattaði að þetta má ekki og faldi mig - just in case ef hann myndi snúa sér við. Ég veit ekki hvort hann gerði það, en ég veit að hvað sem maðurinn notar, þá langar mig í mann sem notar það sama. Ég held að ég hafi aldrei fundið svona góða lykt á ævinni.
Svo skemmdi ekki fyrir að hann var með killer baksvip.