www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það sem mér dettur í hug
Laugardagur, 17. apríl 2010

Auðvitað fór ég aftur og fékk mér pizzu, á sama staðnum, hjá sama kallinum. Hann var svo kátur að sjá mig. Kannski sér hann utaná mér að ég er beisik kona, ef ég dett niður á eitthvað sem mér finnst above average gott, þá sæki ég í það. Aftur og aftur og aftur og aftur og aftur.

Já. Kvöld númer tvö í NY og ég nennti ekki að finna annan stað og ákvað að fara aftur þangað sem ég vissi að ég yrði ánægð.

En ég er ánægð. Ég er svo ánægð. Hótelið sem ég er á er fáránlega ódýrt miðað við staðsetningu, því ég er rétt hjá Empire State Building. Það er enginn morgunmatur innifalinn (sem ég veit um) en herbergið er fínt, tandurhreint og þegar ég bókaði herbergið stóð ég í þeirri meiningu að það væri sameiginleg sturta frammi, en það er sturta og allt sér. Sjónvarp. Ég kveiki aldrei á sjónvarpi á hótelherbergjum. Peningaskápur. Æðislegt rúm. Af hverju eru rúm á hótelum svona rosalega góð alltaf?

Húsið sjálft, ohhh mér finnst það svo kúl. Svo flott bygging. Gólfið er ekki alveg beint, ekki veggirnir heldur. Stiginn hjá lyftunni fer í kringum lyftuna. Í morgun, þegar ég var að fara út, var opið inní herbergið á móti og tveir menn að vinna þar, ég spurði náttúrlega hvort þeir væru að gera upp herbergið og þeir buðu mér að sjá baðherbergið, sem er að verða geeeeeðveikislega flott. Þeir voru ferlega glaðir af því ég var svo hrifin af því sem þeir voru að gera.

Hvaða líkur eru á að fá herbergi númer 419 tvö hótel í röð?

Þegar ég kom úr bænum áðan tók ég til í ferðatöskunni til að sjá hvað ég ætti mikið pláss eftir því ég verslaði smá í dag. Á morgun ætla ég að versla meira og í kvöld keypti ég actually kassa af fruit loops sem ég mun borða við hátíðlega athöfn á Hagamel með börnunum mínum og segja þeim að ÞETTA er næstum því eins og það sem ég ólst upp við, nema það hét Trix og kvikindið utaná var hvít kanína. Ég fékk mér svona í morgunmat á hótelinu í Des Moines og fólkið á næsta borði var farið að stara á mig, ég gaf frá mér svo nautnarleg hljóð. Lord..

Ég er búin að sjá svo mikið í dag að ég ætla ekki að reyna að skrifa um það allt, en eitt af því sem stóð uppúr var þegar ég fór að fá manicure. Ég var ekki búin að plana að gera það, frekar en annað sem ég er að gera hérna vegna þess að ég hafði engan tíma til að plana neitt. Þessi ferð er "hvað dettur Önnu í hug að gera næst" ferð. Anyway, ég var að ganga upp Broadway þegar ég sá manicure stofu og fór inn. Þær vildu taka mig í fótsnyrtingu líka, en ég hafði engan áhuga á því. Nema hvað, rifjaðist ekki upp fyrir mér að þetta er akkúrat það sem Niles gerði þegar hann var single og nú skil ég af hverju. (Niles úr Frasier)

Ég geri sjálf neglurnar á mér fallegri en þær eru eftir þetta manicure, ég get gert neglurnar á mér óaðfinnanlegar - ef ég nenni því og hef tíma til þess. En, ég get ekki gefið sjálfri mér snertingu. Ekki eins og einhver annar getur, og þessi stelpa var svo natin og snerti mig á eiginlega uncanny, caring hátt að ef ég hefði ekki þurft svona mikið á því að halda hefði ég sennilega farið hjá mér.

En það var ekki allt sem hún gerði. Þegar ég var látin setja neglurnar í "þurrk" þá nuddaði hún á mér axlirnar. Ohhhhh.. ég hef bara einu sinni átt kærasta sem nuddaði mig reglulega og það var svo gott, mér fannst það æðislegt.

Ég er ekkert viss um að allir manicurarar geti framkallað svona vellíðan en ég fór út brosandi eins og kærleiksbjörn og áður en ég fór uppá hótel kom ég við í apóteki og keypti krem fyrir naglaböndin - sem þýðir að ég verð komin með mjög fallegar neglur eftir mánuð, því ég mun hugsa um þær. Og þegar ég hugsa um þær, mun ég hugsa um hvað það var gott að láta einhvern annan nostra við hendurnar mínar og stjúka þær og nudda. Ég held að ég sé orðin líkamlega háð snertingu.

Ég hugsa að ef ég kynnist manni sem vill naglalakka á mér táneglurnar, það myndi turna mér svo on að það væri alltaf pointless því ég væri búin að ráðast á hann og fokka naglalakkinu upp á 5 sek flat.

Og ég líka búin að ná þessu með alla opnu skóna! Þetta er svo ódýrt að þær eru alltaf í fótsnyrtingu!

Kannski ég fari í fótsnyrtingu á morgun..


| anna | 4:11 |
comments

Haha, mér líst vel á ferðalanginn Önnu! Enn annar flöturinn á Önnu sem er skemmtilegur. Þetta er sjúklegt með manicure og pedicure stofurnar þarna úti, og fótsnyrting er must! Eitt sinn fór ég í brasilískt vax í New York og þar var ég eins og lítið barn í reifum sem fékk púður á rasinn hjá indversku mömmu sinni. Shiii var eiginlega einum of sko.
happy

Nr. 1 | posted by: Guðrún Inga | 18.04.2010 | 17:22:10 | [+] |

Hæ,
er á útkíkki eftir góðu og ódýru hóteli í NY. Er á leið þangað í maí. Ertu til að upplýsa hvaða hótel er svona gott?

Nr. 2 | posted by: Reynir | 19.04.2010 | 10:13:56 | [+] |

http://www.heraldsquarehotel.com/

Ömurleg heimasíða, ágætis hótel.

Nr. 3 | posted by: anna | 19.04.2010 | 19:32:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web