www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
*censored*
Þriðjudagur, 27. apríl 2010

Vaknaði ekki alveg í toppforminu. Búin að sitja mest megnis við tölvuna að vinna í dag nema þegar ég fór inní eldhús til að fá mér eitthvað að borða. Kveikti í brauðinu í brauðristinni þannig að svartur mökkur liðaðist úr eldhúsinu um alla íbúðina. Ekki einn af þessum fjórum reykskynjurunum sem ég hef hérna fór í gang svo nú get ég sofið róleg á næturnar.

Nema þegar ég var búin að díla við reykinn, með því að hósta aðeins og óska þess að það væri hægt að stilla brightness levels í lífinu eins og photoshop, settist ég aftur við tölvuna og fór að velta fyrir mér af hverju ég byrjaði daginn á að klæða mig í einn inniskó af Dodda - og af hverju ég er búin að vera í honum síðan..

IMG_6922.png

..og ég get ekki svarað þessari spurningu. Og því meira sem ég hugsa um það.. verð ég sannfærðari um að sumum spurningum eigi maður ekki að reyna að svara. Það er bara virkilega hressandi, fyrir mig, að geta verið með risastórann og loðinn fót annað slagið og ég hef enga sérstaka þörf fyrir að vita af hverju.

Ég fékk hinsvegar svar hjá sjálfri mér í dag við annarri spurningu og ákvað í framhaldinu að skipta út hluta af því sem ég hef skrifað undanfarið fyrir orðið *censored*.

Svo þetta eru nýju reglurnar. Ég mun skrifa um hluti eins og þegar ég er með einn loðinn fót og þegar ég kveiki í brauði og svoleiðis. En ekki um hluti sem skipta mig verulega miklu máli. Af því það er stúbid.


| anna | 18:12 |
comments

En. Voru það ekki gamlar reglur? Nú ertu alveg að rugla mig í ríminu. You wicked womansmile En til hamingju með afmælið!

Nr. 1 | posted by: Kristín | 27.04.2010 | 19:35:57 | [+] |

Takk smile

Jú gamlar reglur. Ekki að þessar reglur virki neitt betur. Hef svosem látið reyna á það líka.

Nr. 2 | posted by: anna | 27.04.2010 | 19:51:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web