www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í Hollandi á háum hælum
Þriðjudagur, 16. mars 2010

Ég var beðin um að halda ákveðna tegund af kynningu hérna í Hollandi, en þegar ég var að útbúa kynninguna uppí rúmi á hótelinu í fyrradag (the bed office) ákvað ég að taka allt annað spin og tala um aðra hluti. Ég er svo uppátektarsöm stundum og óhlýðin. Það er eitt af því sem mér líkar svo vel við í fari mínu.

Fólkið sem var á kynningunni í gær er verulega ánægt og nú er búið að biðja mig að halda sömu kynningu á stærri fundi, svo í kvöld ætla ég að bæta þeim glærum við sem ég náði ekki að klára fyrir mánudaginn.

Ég er í einhverju mögnuðu stuði þessa dagana, tilfinningin er sennilega eins og þegar maður fer á veðreiðar og allt sem maður veðjar á vinnur - nema ég er ekki að veðja. Jú kannski.. ég tók séns þegar ég gerði þessa kynningu, en ég vissi líka að hún yrði miklu betri en hin kynnningin hefði orðið. Ég veðja ekki oft en þegar ég geri það vinn ég yfirleitt.

Hið óvænta í stöðunni var fundurinn í dag. Ég er búin að vera hálf óróleg útaf þessum fundi, nema hann gekk svo fáránlega vel að jafnvel ég í bjartsýniskasti á amfetamínsterum hefði ekki getað séð svona góða útkomu fyrir.

Allar tillögur samþykktar, útlitið samþykkt, skipulagið samþykkt.

Þetta þýðir að ef allt gengur upp og enginn þarf að hlaupa í annað er hægt að klára þetta á einum mánuði - miðað við að það þurfa allir alltaf að gera aðra hluti líka, reikna ég með að þetta taki rúmlega tvo mánuði - og ef maður tekur inní ófyrirséðar tafir er hægt að bæta rúmum mánuði við.

Og að koma þessu máli alveg útaf borðinu á fjórum mánuðum er nokkuð sem ég hef bara þorað að vona þegar ég er með skerta meðvitund eða alveg sofandi.

Ég er búin að vera í háhæluðum skóm síðan ég kom af fjallinu á laugardaginn. Ef ég fer af hælunum versnar göngulag mitt til muna og hefði fyrstu dagana jafnvel getað gefið fólki þá hugmynd að ég ætti í ástarsambandi við stórann og mikinn hrímþurs. Ekki mjög flattering göngulag svo það eru hælar fyrir mig út vikuna. Það eru reyndar hælar fyrir mig allar vikur, alltaf. Nema þegar ég fer uppá fjöll..


| anna | 17:52 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web