www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Um val
Miðvikudagur, 03. mars 2010

Ef þú þarft að velja á milli tveggja hluta og veist fyrirfram að þú getur ekki skipt um skoðun eftirá, eru miklar líkur á að þú verðir mjög sáttur við það sem þú velur.

Ef þú þarft að velja en veist að þú getur skipt um skoðun innan sex daga, þá ertu líklegur til að vera aldrei sáttur við valið.

Mér finnst þetta stórmerkilegt.

Having said this. Verð ég að spyrja.

Ef þú þarft velja á milli þess að þurfa að gera upp á milli einhverra hluta strax og fá ekki að skipta um skoðun eftirá - eða velja á milli tveggja hluta strax en vita að þú getur skipt um skoðun innan sex daga.. hvort myndir þú halda að væri farsælla að gera?

Mig langar að vita hvor leiðin þér finnst líklegri til að færa þér meiri hamingju - og - hvora leiðina þú myndir velja.


| anna | 14:05 |
comments

Ég myndi vilja velja strax og þurfa að standa við það val. Mér leiðist svo fólk sem hangir í efa með val sitt: "ef ég hefði, ef ég hefði ekki, blabla". Leiðinlegasta fólkið sem maður þekkir, kannski fyrir utan liðið sem segir: "ef HANN hefði/ef HÚN hefði...".

Nr. 1 | posted by: Kristín | 3.03.2010 | 15:42:59 | [+] |

Dásamlegt! Þú ert greinilega ekki valkvíðakona wink

Nr. 2 | posted by: anna | 3.03.2010 | 15:55:22 | [+] |

Hefð'áttáfélagið er erfiður félagsskapur sem horfir fyrst og fremst til baka.

Mismunurinn á milli þessara valkosta er fyrst og fremst lengd ákvörðunartímabilsins (Agony period).

Skýrt val kallar á staðfestu strax. Eftir að ákvörðun hefur verið tekin er hægt að einbeita allri sinni orku í að standa við það sem valið var.

Að geta valið aftur eftir sex daga þýðir í raun að maður verður að velja aftur eftir sex daga.

Ef eitt val er erfitt eru tvö völ erfiðari smile

Er sammála Kristínu. Velja strax og standa við það.

Nr. 3 | posted by: enginn | 3.03.2010 | 16:24:20 | [+] |

Nei, the agony period hefur nefnilega ekkert með lengd skilafressts að gera. Fólk sem vill fá að geta skipt verður víst óánægt með valið löngu eftir að hann er liðinn á meðan þeir sem velja strax eru orðinir ánægðir með valið eftir nokkra daga og vissir um að þeir völdu rétt. Hættir að pæla í þessu.

Það finnst mér alveg stórmerkilegt.

Nr. 4 | posted by: anna | 3.03.2010 | 17:23:38 | [+] |

Ef vel aðra leiðina núna, má ég þá breyta aftur eftir sex daga?

Nr. 5 | posted by: Yngvi | 3.03.2010 | 19:09:13 | [+] |

Þegar ég skrifaði þessa færslu endaði hún á: þú þarft að svara strax og það er ekki hægt að skipta um skoðun.

Hefði greinilega átt að halda því inni.

Nr. 6 | posted by: anna | 3.03.2010 | 19:27:25 | [+] |

Velja strax, ekki spurning. smile

Nr. 7 | posted by: hildigunnur | 3.03.2010 | 23:28:55 | [+] |

Þetta er hluti af þessum fyrirlestri http://www.ted.com/index.php/talks/dan_gilbert_asks_why_are_we_happy.html

Nr. 8 | posted by: anna | 3.03.2010 | 23:31:40 | [+] |

Það er þó vert að það komi fram að ég er mikil valkvíðakona og kem mér glæsilega undan ýmsu vali, s.s. eins og hvað á að vera í matinn. Hins vegar er ég týpan sem vill láta rífa plásturinn af í einum rykksmile og þegar ég verð að velja sjálf, vil ég bara taka af skarið og standa svo við það. Nýlega valdi ég að segja já við ákveðnu verkefni en var mjög hikandi. Svo gerðist dálítið sem olli því að ég bakkaði og er mjög sátt við það. Þar má segja að ég hafi fengið frest og getað skipt um skoðun, en í raun breyttust allar forsendur og ég valdi upp á nýtt. Og þannig er það nú ansi oft í lífinu. Það er flott að geta skipt um skoðun og staðið við það. Og ég lofa sjálfri mér því að ég mun aldrei, aldrei finna sting í hjartanu þó ég sjái einhvern græða á því sem ég bakkaði út úr, heldur mun ég gera allt sem ég get til að hjálpa þeirri manneskju.

Nr. 9 | posted by: Kristín | 4.03.2010 | 8:32:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web