www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tölur mánaðarins
Mánudagur, 01. mars 2010

01.03.10.png

Ég segi sjálfri mér að ég sé ekki að léttast of hratt, líkami minn sé bara að leita í sitt rétta form. Don't spoil it. Og frænka mín var ekki að grínast með upphandleggina. Ég hef ekki verið með svona flotta upphandleggi síðan.. 2006, þegar ég var að æfa á fullu. Ég held líka að veikindin í síðustu viku eigi mestan heiður af þyngdartapinu í þessum tölum og reikna með að þetta komi aftur hratt.

Ég er ekki sú eina á heimilinu með boddí sem er að leita í sitt rétta form. ZGerman og ég fórum saman á sprautuverkstæði í dag og þeir ætla að gera bílinn eins og nýjan fyrir mig. Ég er samt að spá í að láta þá ekki gera það fyrr en ég fer út, þá slepp ég við að fá bílaleigubíl.

Því þó hann sé ekki skemmtilegasti bíll að keyra í miklum snjó, vil ég samt helst ekki þurfa að vera án hans.

Þegar ég var að raða inn dagskrárliðum næstu daga varð mér litið á púsluspilið sem er á borðstofuborðinu. Ég er ekki búin að snerta það í rúman mánuð núna. Krakkarnir treysta sér ekki í það svo það liggur bara þarna eins og liffæri í formalíni. Ég ætlaði að slaka á um páskana og púsla, en ég hef grun um að páskarnir fari í annað.

Á ég að játa mig sigraða og taka það niður núna.. eða sjá hvað gerist um páskana?

Ég hef ákveðið að fá mér ekki páskaegg í ár. Ég fæ eitt frá vinnunni svo ég fæ málshátt, maður verður að fá málshátt. Mér finnst páskaegg hvort sem er ekki það góð.

There it is: ég er orðin afhuga sælgæti. Eins og hvað ég gat troðið í mig af þessu stöffi, þá langar mig ekki í þetta í dag. Og ástæðan er að mér líður betur ef ég sleppi því að borða þetta. En ég er síborðandi mangó, ananas, vínber, brotnar kasjúhnetur, döðlur, tómata, gúrku, gulrætur og reyndar borða ég ennþá súkkulaðihúðaðar rúsínur. Með hnetunum. Ég er alltaf borðandi, en slepp algjörlega við þessa tilfinningu að ég sé uppþembd, bloated og við það að æla eftir of mikið sælgætisát.

Ekki slæm skipti það.


| anna | 22:07 |
comments

OOOH, hvað ég þyrfti að taka að mér þetta púsl. En...
Og vá, hvað tölurnar eru flottar, kona! Djí. Ég er fegin að ég fór ekki út í þetta, að birta tölur, ég get að ég held svarið að varla nokkuð hefur skorist af mér, en mér líður þúsund sinnum betur og hef líka fundið minni löngun í sætindi (borða aldrei nammi, bara súkkulaði og kökur og svo kókosbollur þegar ég er á Íslandi) og líka minni löngun í áfengi (norski sjóarinn sem drekkur í gegnum mig er reyndar lítið hrifinn af þeim áhrifum og hefur reynt að stöðva stökkin með ýmsum hætti, meiddi mig t.d. í hendinni um daginn, en það dugði ekki til).

Nr. 1 | posted by: Kristín | 2.03.2010 | 18:45:37 | [+] |

Takk Kristín! Oh men, það var svo gaman í kvöld! Já tölurnar eru flottar og í kvöld kom samstarfsmaður sem sagðist hann ætla að koma og stela þessum töfra hnetum og rúsinum sem ég er alltaf með á borðinu mínu og treð í mig alla daga fyrst þær hafa svona mögnuð áhrif. Skil nú ekki að það hafi ekkert breyst hjá þér, hafa fötin ekkert stækkað?

Segðu þessum norska sjóara að hoppa uppí ra**gatið á sér ef hann er að rífa kjaft. Mér leiðist þegar fólk getur ekki hreyft sig án þess að vera lepjandi, srsly. Auk þess er lágmarks kurteisi að leggjast á samlanda sinn með svnoa ónæði, láttu hann drekka í gegnum Evu Joly! hehehe

Ég meiddi mig líka í öxlinni þegar ég átti ca tvær vikur eftir. Ég lét það ekki stoppa mig wink

Djöfull var þetta massað skemmtilegt kvöld. AAAAAAAAAAAAA Það er ekkert hægt að fara heim að sofa eftir svona! Dem..

Nr. 2 | posted by: anna | 3.03.2010 | 0:38:26 | [+] |

Haha, Eva Joly getur bara tekið allt okkar vesen á sig og hana nú! Oh, hvað ég trúi því að kvöldið hafi verið frábærtsmile

Nr. 3 | posted by: Kristín | 3.03.2010 | 8:06:18 | [+] |

Nah.. svona eftirá finnst mér það nú full mikið á Evu lagt.

Já það var sko gaman í gær. Úff..

Nr. 4 | posted by: anna | 3.03.2010 | 10:02:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web