Fimmtudagur, 18. mars 2010
Þegar ég stend frami fyrir vali og einn kosturinn er eitthvað sem ég vil umfram allt annað - fyrir mig, en veit að það yrði á kostnað þeirra sem treysta á að ég sé til staðar, þá get ég ekki valið það. Ég gæti aldrei fyrirgefið sjálfri mér ef ég myndi gera það. Ég veit það um sjálfa mig.
Svo ég fórna drottningunni. Ef það er eitthvað sem er þess virði að fórna henni fyrir, þá er það þetta team. Auk þess á ég ennþá nokkur peð eftir - og ég er ekki mát. Ennþá.
En það sem ég myndi gefa fyrir að fá stundum að vera eitthvað annað en sterk í smá tíma, af því einhver annar er sterkur fyrir mig.