www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
RIP
Fimmtudagur, 04. mars 2010

Um daginn komst ég að því hver það er sem hefur kommentað undir nafninu Enginn. Þegar hann gaf sig fram sagði ég að þetta nikk gengur ekki upp lengur, því hann er ekki lengur Enginn.

Áðan fékk ég tölvupóst með subjectlínunni: RIP.

Í póstinum bar Enginn upp sína hinstu ósk, sem er að ég haldi áfram með movie hall of fame spurninguna. Í póstinum fann ég líka þessa mynd:

enginnrip.png

Ég vona að hann verði sá eini í ár sem lendir á þessu skilti.


Your wish has been granted, sir.
It was delivered to the front entrance.

Ég var að hugsa um að hafa verðlaun í þetta skipti. Sá sem sendir fyrstur inn rétt svar vinnur ferð með mér út að borða á bæjarins bestu og fær eina pulsu að eigin vali OG kók. Viðkomandi þarf reyndar að koma sér sjálfur á staðinn, þetta er ekki sækjum og sendum þjónusta.

[Uppfært 5. mars 2010: Rétt svar við getrauninni var "This is Spinal Tap".]


| anna | 19:20 |
comments

Djöfulsins skepna geturðu verið. Þetta er svakalega erfitt!

Nr. 1 | posted by: Ódysseifur | 4.03.2010 | 21:14:56 | [+] |

Varst þú að sniffa lím?

Hvernig dettur þér í hug að það sé auðvelt að komast með mér á bæjarins bestu í pulsu og kók?

Nr. 2 | posted by: anna | 4.03.2010 | 21:38:39 | [+] |

En á Holtið?

Nr. 3 | posted by: Ódysseifur | 4.03.2010 | 21:58:53 | [+] |

Þú ert krútt, en þeir selja ekki pulsur og kók á Holtinu smile

Nr. 4 | posted by: anna | 4.03.2010 | 22:40:11 | [+] |

Ert þú alltaf svona erfið?

Nr. 5 | posted by: Ódysseifur | 4.03.2010 | 22:49:34 | [+] |

Það lítur út fyrir það.

Nr. 6 | posted by: anna | 4.03.2010 | 23:00:07 | [+] |

Þetta skilti verður vonandi svona sem lengst.

Þetta er fjandi þung þraut. Kallar á meira grúsk en stundum.

Nr. 7 | posted by: Ragnar Torfi | 5.03.2010 | 0:32:58 | [+] |

Var ég fyrstur?

Nr. 8 | posted by: Ódysseifur | 5.03.2010 | 11:33:36 | [+] |

Þú ert með þetta.

Nr. 9 | posted by: anna | 5.03.2010 | 12:19:09 | [+] |

Hooah!

Nr. 10 | posted by: Ódysseifur | 5.03.2010 | 13:08:27 | [+] |

Þetta ÁTTI ég að vita.

Volume level 11 AUÐVITAÐ!

Held stundum að ég tilheyri 5% félaginu.

Nr. 11 | posted by: Ragnar Torfi | 5.03.2010 | 21:34:09 | [+] |

Nah ég efast nú um þú tilheyrir því smile

Nr. 12 | posted by: anna | 6.03.2010 | 0:00:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web