www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hamingja í samskiptum/samböndum
Mánudagur, 29. mars 2010

Þegar maður reynir að eiga samskipti við einstakling sem kemur ekki hreint fram, er ekki heiðarlegur varðandi hvernig honum líður.. þú átt ekki séns.

Þú átt ekki séns nema þú sért að eiga samskipti við einhvern sem er heiðarlegur og nógu hugrakkur til að opna og segja satt. Þetta gildir bæði um fólk sem er ekki heiðarlegt þegar því líður vel og þegar því líður illa.

Gildran sem ég fell í þegar ég reyni að eiga við svona fólk, áður en ég gefst upp - því ég gefst upp, er að ég reyni og reyni og reyni að tala við viðkomandi og skilja hvað er að gerast, en það skilar engum árangri. Af því mig langar svo að ná til einstaklingsins gleymi ég þessu atriði hérna: "Never try to teach a pig to sing. It is a waste of your time, and it annoys the pig." Tek fram að ég lít ekki á fólk sem hagar sér svona sem svín, en þetta er waste of time og endar á að vera annoying ekki bara fyrir þann sem þú ert að reyna að ná til heldur fyrir þig líka. Ef viðkomandi væri heiðarlegur myndi hann segja: ég ætla ekki að opna á þig. Ég ætla ekki að gefa þér séns. Ég vil ekki tengjast þér. Eða hvort það er: ég get ekki opnað á þig. Ég þori ekki að gefa þér séns. Ég þori ekki að tengjast þér. Skiptir ekki máli, niðurstaðan er sú sama.

Ég var nokkuð viss um þetta fyrir, nú er ég sannfærð. Það er nefnilega búið að finna út hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að fólk geti lifað hamingjuríku lífi saman svo spurningin er ekki hvort það er hægt, heldur, hvernig er það gert - hvernig get ég gert það. Mér finnst mjög ánægjulegt að vita að þetta sé hægt og að það sé hægt að læra hvernig þetta er gert - ef maður kann það ekki fyrir.

Don't eliminate the negative

- Disagreement provides a growth opportunity. An opportunity to learn about the other person and about ourselves. There is no partner who is perfect, we can all learn and improve. We are all human.
- Conflict immunizes. When we get ill or are about to get ill, our immune systems strengthens as a result if we overcome this. The same is with conflicts in relationships, if you overcome the conflict, the relationship becomes stronger.

Það er ekkert unnið með því að afneita því sem er vont, en þú hefur allt að vinna með því að takast á við það. Þetta er svona með nánast allt í lífinu.

Ef þú upplifir eitthvað neikvætt þá kemstu yfir það með því að upplifa minnst fimm sinnum eitthvað jákvætt. Þess vegna er svo slæmt þegar fólk venur sig á að segja upphátt þegar því líkar illa við eitthvað en þegir í hvert skipti sem því líkar vel við eitthvað. Hlutfallið af jákvæðum hlutum þarf að vera jákvæðni í vil ef þú vilt upplifa hamingju eða gefa öðrum jákvætt feedback, en það þýðir ekki að þú eigir að bæla niður allt neikvætt sem þú upplifir. Bara ekki bæla niður allt það jákvæða heldur. Augljóslega er þessi tala, fimm, viðmið.

Hvernig er hægt að gefa jákvætt feedback í sambandi?
Það er gert svona:

Accentuate the positive

- Show interest, show your partner that you are interested in knowing him/her.
- Pay compliments - don't take it for granted, especially once you're in a relationship for a long time. Don't take these things for granted. Say it again and again and again. We need nurturing, we need emotional nurturing more than anything we need it from the people we are most close to.
- Make time for love - put aside time for love, for a date, especially in todays world. Ideally, it would all be spontaneous. We see each other and say, okay let's go to a movie - okay, let's make love, but in today's world, when we're so busy, if we don't put time aside, in most situations, it's not gonna happen. When we want to spend time together, other things will take over our time. It's like the law of gases. A gas will always fill up the room, no matter how little of it there is, same with time. If we don't put time aside especially in today's world, other things will fill up all of our time and we won't have time for each other. So have a date - a day in a week where you have a date with your partner. Time with the family, put these times aside explicitly.
- Love is in the details (touch, smile, flowers, notes..) Yes it is important to have the 25th anniversary ring, cruise around the world on the 50th anniversary, but ultimately, it's the little things, whether it's the flowers, the little touch, the smile, the embrace, the extra attention and consideration - these are the positive things that make relationships work in the long run. That make passion grow in the long run.

Þetta er ekki flókið, er það?

Eins og Tal Ben-Shahar minntist á er ekkert af þessu sem hann er að segja eitthvað nýtt, megnið er common sense. Því miður, þá bendir hann á að common sense... er ekki svo common.

Það sem þessi atriði hafa fram yfir það sem maður les í sjálfshjálparbókunum (margt af þessu er í sjálfshjálparbókum) er að á bak við þetta liggja vísindalegar rannsóknir sem segja einfaldlega að þetta virkar. Fólk sem hagar sér svona í sambandi, og ef maki þeirra gerir það líka, er sambandið farsælla en hjá fólki sem gerir þetta ekki. Auðvitað þurfum við mis mikið af athygli en við þurfum öll næringu, hvatningu, jákvætt viðmót frá þeim sem standa okkur næst og skipta okkur mestu máli. Svo þegar lítið af þessu er til staðar og útséð að það þýðir ekkert að ræða við viðkomandi um breytingar, er kominn tími á að hætta að waste your time, stop being annoyed and move on.

Að lokum. Þegar þú lest þetta og ef þú hugsaðir: hann/hún (makinn minn) gerir ekki nóg af þessu eða hinu, lestu þetta þá aftur með hugarfarinu: hvar get ég að bætt mig gagnvart makanum mínum í dag? Og ef þú getur bætt þig, gerðu það þá í dag. Ekki bíða með það, þá gerist það aldrei. Ekki gleyma þessu með gasið, við höfum ekki endalausan tíma. Eyddu honum vel og í hluti sem skipta máli.

Það er alltaf best að byrja á sjálfum sér þegar maður reynir að gera heiminn aðeins betri.


| anna | 19:34 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web