www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á mánudagsmorgni
Mánudagur, 08. mars 2010

Hann sagðist langa að spyrja mig að svolitlu.
Shoot, svaraði ég.

Ég þekki konu sem er tíu árum eldri en þú. Hún er búin að vera skilin í x mörg ár og hún virðist vera komin í rútínu sem lýsir sér þannig að hún deitar menn í x langan tíma og hættir svo með þeim. Og hún segir að þetta sé frábært. Hún er laus og liðug, getur gert það sem hún vill, þegar henni sýnist, er engum háð og hún vill ekki fara í samband sem er eitthvað meira en þetta.

Hann leit á mig en sagði ekkert. Ég skildi samt spurningina.

Ég held að þessi kona sé að ljúga. Aðallega að sjálfri sér. Ástæðan fyrir því að hún finnur ekkert sem hún endist í er sennilega vegna þess að á þessum aldri eru fáir góðir bitar á lausu og hún er hætt að leyfa sér að vona að hún muni finna það sem hún vill finna. En sannaðu til, daginn sem hún finnur mann sem hefur það sem hún þarf, þá á hún ekki eftir að vilja hætta með honum.

Ég held að þetta sé rétt hjá þér, svaraði hann. Ég á nefnilega líka góðan vin sem var í slösuðu hjónabandi og skildi á endanum. Og einhvertíma hitti ég hann og hann sagði: "Það er ofboðslega leiðinlegt að búa einn." Og hann sagði þetta af svo miklum þunga og áherslu, að það var augljóst að hann var að meina það sem hann sagði. Þar fyrir utan er þetta maður sem er nú ekkert að tjá sig um svona mál almennt, svo þetta komment frá honum kom mér á óvart. Þegar þessi kona er að dásama einveruna finnst mér alltaf eins og hún sé að sannfæra sjálfa sig.

Eins og Clooney sagði í myndinni: Life is better with company. Það er til dæmis ekkert gaman þegar það gengur vel hjá þér, en þú hefur engan til að deila því með. Það er ekkert gaman að sitja einn heima og hugsa "YES! Djöfull var þetta frábært hjá mér", en það er engin sem tekur undir það með þér eða langar að fagna sigrinum þínum með þér. Þú getur átt vini og fjölskyldu sem tekur þátt, en það hefur samt aldrei sama vægi og ef það er maki. En ég get samt sagt þér eitt. Þó svo mér finnist sjálfri ömurlegt að hafa ekki partner til að deila lífi mínu með, finnst mér betra að vera ein en í vondu sambandi þar sem þarfir mínar hafa ekkert vægi eða er ekki sinnt. Svo af tvennu illu vil ég frekar vera einmana en ánægð, en að hafa félagsskap og vera miserable. Það þýðir samt ekki að ég sé búin að selja mér þá hugmynd að ég sé better off ein, og daginn sem ég finn mann sem er bæði til staðar fyrir mig og vill deila lífi sínu með mér, þá vel ég það fram yfir nokkuð annað - þó svo það þýði að ég geti ekki gert það sem mér dettur í hug lengur þegar mér dettur í hug að gera það. Mér finnst það small price to pay.

Hann var hugsi. Það er svo mikið af vondum samböndum þarna úti. Allt um kring.

Ég veit, svaraði ég.

Og mörg af þeim eru bara smá veik og vel hægt að laga þau, en fólk gerir ekkert til að laga það sem að er. Ég skil það ekki.

Ég held að það sé vegna þess að fólk er hrætt við að rock the boat. Fólk velur frekar að vera óhamingjusamt og gera ekkert í því, en að gera eitthvað í því og taka sénsinn á að það a) verði hamingjusamt, sem það er búið að telja sér trú um að geti hvort sem er ekki gerst með þessum aðila, eða b) endi eitt aftur. Að vera einn er mjög skerí og mörgum finnst það erfiðari tilhugsun en allt annað. Svo fólk sættir sig við að vera óhamingjusamt því það er allavega ekki alone - sem er akkúrat í hina áttina við það sem vinkona þín er búin að selja sjálfri sér. Ég skil hana að vissu leyti. Hún veit að hún er hamingjusamari ein á meðan hún finnur ekki það sem hún þarf. Eini munurinn er að ég held því ekki fram að það sé betra að vera einn ef eitthvað alvöru stendur til boða. Það er bara svo andskoti sjaldgæft að ég skil mjög vel að hún selji sjálfri sér að þetta sé málið. Ég er ekki alveg komin á þennan stað ennþá. Ég er líka tíu árum yngri en hún.

Hann brosti. Af hverju vinnur þú ekki við ráðgjöf eða eitthvað tengt fólki?

Ég vinn við eitthvað tengt fólki.

Ég hélt að þú ynnir við tölvur.

Tölvur eru bara verkfæri. Vinnan mín felst í að skilja fólk, hvaða upplýsingar þetta fólk þarf og hvernig því finnst best að nálgast þessar upplýsingar á vefnum.

Áhugavert viðhorf.

Þetta er ekki viðhorf. Þetta er það sem ég geri.
--

Svo getur vel að hún sé ekkert að ljúga og ég verði komin á þennan stað eftir tíu ár, endanlega sannfærð um að ég sé better off ein. Finni mér fuck-buddies sem ég get hóað í annað slagið til að bústa upp egóið, en vilji svo ekkert meira með þá hafa.

Mér finnst það bara svo cheap.


| anna | 14:19 |
comments

Þetta er líka spurning um hverju fólk er vant. Þeir sem hafa verið í sambandi eða samböndum frá unglingsárum án þess að vera lengi single á milli eiga alveg óskaplega erfitt með að búa einir samkvæmt minni reynslu. Svo eru það hinir sem hafa byrjað seinna í samböndum og/eða verið meira einir sem verða oft pirraðir á lack of privacy and private time. Þetta er einstaklingsbundið og oft snúið.

Nr. 1 | posted by: Dunni | 8.03.2010 | 20:04:50 | [+] |

Ég á auðveldrara með að búa ein en með manni sem kemur með lítið value í sambandið og gefur lítið af sér - samt á ég langa sambandssögu sem nær á unglingsár. Ég tók hinsvegar meðvitaða ákvörðun þegar ég skildi um að læra að búa ein með sjálfri mér, ég vildi vita að ég gæti það. Og hvað privacy varðar finnst mér það vera á ábyrgð hvers og eins að skapa sér það privacy sem hann þarf. Oft er það nú bara spurning um traust svo ef þú ert klár þá passarðu það grundvallaratriði því annars hefurðu ansi skert frelsi (og ættir í raun að beila).

En auðvitað er þetta persónubundið og ég er engin stóri dómur á hvað virkar fyrir annað fólk. Ég get bara talað útfrá sjálfri mér og því sem virkar fyrir mig.

Nr. 2 | posted by: anna | 8.03.2010 | 21:14:03 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web