www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Good guy - Creepy guy
Mánudagur, 01. mars 2010

Aðkomumaðurinn kom í gærkvöldi að kveðja okkur.

Hann kom með leik sem krakkana er búið að langa að fá í NES tölvuna sem við fengum um daginn. Hann var búinn að pakka leiknum inn og Doddi fékk að opna. Þegar Doddi hafði opnað pakkann og fagnað gríðarlega stóð hann upp og sagði "jæja, búðu þig undir riiiiiisastórt knús" og spennti greipar öfugt (veit ekki hvernig maður lýsir þessu betur) eins og hann væri að búa sig undir bardaga áður en hann stökk á aðkomumanninn og faðmaði hann að sér. Ég sá að aðkomumaðurinn fór hálfpartinn hjá sér en fannst þetta samt ekkert leiðinlegt.

Þetta er búinn að vera svo góður tími.

Síminn er ekki búinn að stoppa í kvöld einhverra hluta vegna. Núna síðast svaraði Doddi. Eftir nokkrar sek tók hann fyrir símtólið. Með hryllingssvip hvíslaði hann: mamma, það er creepy guy í símanum. Viltu tala við hann?

Creepy guy. Ætli hann hafi kynnt sig svona?

Þetta vakti auðvitað forvitni mína og ég tók við símtólinu, sagði: "Anna".
Ofboðslega yfirdrifin kurteisisrödd svaraði: "Sæl Anna, ég er að hringja frá capacent fyrir VR.. "


| anna | 20:32 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web