www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hamingja
Sunnudagur, 28. mars 2010

Ég var svo heppin að fá gefins miða á fyrirlestur í Háskólabíói í gær hjá Tal Ben-Shahar, manninum sem skrifaði bókina: Happier: Learn the Secrets to Daily Joy and Lasting Fulfillment.

Karl Ágúst Úlfsson þýddi bókina á íslensku og hún var gefin út fyrir síðustu jól. Ég sá bókina í bókabúð fyrir jólin í fyrra og keypti eintak handa manni sem mér þykir vænt um. Ég keypti bókina on instinct, því ég hafði hvorki heyrt um Tal Ben-Shahar, né heyrt um þessa bók, en þegar ég fór að pakka henni inn las ég aftaná bókina, las fyrsta kaflann og ég vissi strax að þetta var bók sem ég yrði að eignast svo daginn eftir keypti ég annað eintak handa sjálfri mér í jólagjöf líka.

Þegar ég las bókina eftir jólin staðfesti hún hvað ég er að gera margt rétt og að ég er á hárréttri leið, en hún gerði mér líka grein fyrir að ég er ennþá að gera sumt rangt - um leið og hún gaf mér leiðir til að gera eitthvað í því. Þegar ég kláraði að lesa bókina óskaði ég mér að ég fengi tækifæri til að sjá þennan höfund tala/halda fyrirlestur og um helgina rættist sú ósk - out of the blue - og ég er svo þakklát fyrir það vegna þess að þrátt fyrir að hafa farið með verulega miklar væntingar, fór hann fram úr þeim væntingum. Eftir fyrirlesturinn fékk Tal Ben-Shahar standing ovation í Háskólabíói.

Gærdagurinn var reyndar alveg sérstaklega ánægjulegur dagur í mínu lífi, ekki bara vegna þess að ég fékk tækifæri til að heyra meira um hvernig maður getur lifað hamingjuríkara lífi heldur líka vegna þess að sama dag fékk ég að samgleðjast vinkonu minni sem var að gefa út sína fyrstu bók. Eins og þetta sé ekki nóg af hamingjuríkum viðburðum fyrir einn dag, þá gerðist fleira, en það er nokkuð sem ég ætla að eiga fyrir sjálfa mig.

Það má segja að ég sé ennþá "high" eftir gærdaginn og ég spái því að næstu blogg sem ég skrifa muni ekki vera mín eigin, þannig lagað, heldur um það sem Tal Ben-Shahar talaði um í fyrirlestrinum sínum - og öðrum fyrirlestrum sem ég hef fundið frá honum.

Það fyrsta sem ég ætla að hafa eftir honum er það sem hann sagði um tilfinningar og að það væru bara tvær tegundir af einstaklingum sem geta ekki upplifað tilfinningar. Bara tvær tegundir: sækópatar og fólk sem er dáið.

Við hin, sem erum ekki sækópatar eða dauð, við höfum öll tilfinningar og við upplifum þær en gerum hinsvegar flest þau mistök að reyna að bæla niður margar af neikvæðum tilfinningunum sem við upplifum, sem veldur því að þær verða bara sterkari og deyfa um leið góðu tilfinningarnar okkar - sem gerir okkur minna fær um að upplifa hamingju. Vissir þú það?


| anna | 22:25 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web