Laugardagur, 20. mars 2010
6. mars, 2010
Þegar ég er nálægt honum líður mér betur en venjulega og það hefur verið þannig frá því ég hitti hann fyrst fyrir þremur árum síðan. Ég man að ég þurfti að horfa tvisvar og var viss um að hann væri giftur. Nú veit ég að hann var giftur, en skildi fyrir einhverjum árum síðan - eins og ég.
Síðasta haust komst ég að því að hann er jafn meðvitaður um nærveru mína og ég um hans, þegar hann sendi mér bréf þar sem hann sagði mér nákvæmlega hvernig honum leið. Á þeim tíma var ég í sambandi með öðrum manni. Ég skrifaði til baka og sagði að ég væri í sambandi svo málið var dautt.
En.. ég er ekki í sambandi lengur og spurningin sem ég spyr sjálfa mig þessa dagana er: á ég?
Í raun má segja að ég sé komin með svarið ef ég ýti á "Publish"
---
20. mars, 2010
Já, auðvitað á ég!
xxx says: ég hef fulla trú á að þetta fari vel
Anna says: hvað fær þig til að segja þetta?
xxx says: því þú ert frábær og hann virðist vera yfir sig hrifinn
Anna says: takk