Mánudagur, 15. febrúar 2010

2,4 dl af vatni
100 gr smjörlíki
2,4 dl af hveiti
4 egg
Vatnið og smjörlíkið soðið saman í potti.
Hveitið er sett útí sjóðandi vökvann og hrært snöggt saman.
Sett í hrærivélina og hrært í rólegheitunum.
Eitt egg sett útí í einu og hrært vel á milli.
(gott að nota tímann á milli til að ganga frá í eldhúsinu og svona)
Sett á plötu, 2 tsk aðferðin.
Bakað við 200° - 180° í blástursofni.
Í ofninum í ca 30 mín.
Uppskriftin skilar ca tveimur plötum af ljúffengum bollum.
Það er alveg bannað að opna ofninn fyrstu 20 mínúturnar, þá fellur þetta til fjandans.
Sweet lord... þetta er svo gott

Bon appetit!