www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
The first day of the rest of my life
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010

Ég er orðin svo vön að byrja strax að hreyfa mig þegar ég kem heim að þegar ég kom heim áðan byrjaði ég strax á froskastökkunum - þegar það rann upp fyrir mér að það var ekki það sem ég ætlaði að gera. Mundi það þegar ég var búin með tíu svo ég svissaði í það sem ég ætlaði að gera: armbeygjur.

Ég gerði tíu armbeygjur. Það er hluti af nýju áskoruninni. Ég veit vel að ég get gert eina, svo fyrstu tíu 30 dagana geri ég tíu 30, svo fer ég að bæta einni við á dag. Ég ætla að fara uppí 50 100. Sumsé, ein af "nýju" æfingunum eru armbeygjur - á tánum.

Næst gerði ég 20 situps. Tek 20 fyrstu 20 dagana og svo fer ég að bæta einni við á dag uppí 100.

Næst gerði ég æfingu sem er framstig+uppstig+afturstig og ég gerði bara eina (sem er samt eiginlega tvær) og fer uppí 100.

Eftir að hafa ráðfært mig við crossfit þjálfara snillinginn hana Eddu frænku hef ég ákveðið að taka 50 froskastökk 3x í viku, en með óreglulegu millibili. Í 100 daga.

Fuck it. Best ég fari uppí 100 í armbeygjunum líka.

Let the games begin.

(update: var að taka tuttugu armbeygjur, svo ég breytti þessu í 30 á dag fyrstu 30 dagana)


| anna | 19:09 | send to facebook |
comments

Takk fyrir innblásturinn, Anna! Ég treysti mér ekki til að píska mig áfram upp í 100 burpees á 100 dögum heima, þannig að vinnufélagarnir voru virkjaðir með og við ætlum að gera þetta nokkur saman áður en við förum í hádegismat. Það var mikið flissað, en alls lögðum við sjö í þetta saman og hlökkum til að verða sterk og stælt eftir því sem líður á vorið. Takk!

Nr. 1 | posted by: Vala G | 3.02.2010 | 20:01:31 | [+] |

Frábært framtak Vala! Það erfiðasta er að koma sér að því að gera þetta á hverjum degi. En hvað mig varðar þá er þetta að skila sér svo margfalt til baka. Og kostar ekki krónu!

Endilega leyfðu mér að fylgjast með ykkur, snilld að taka sig saman svona í vinnunni, mér fannst einmitt erfiðast að gera þetta ein heima um helgar - en gerði það samt! smile

Nr. 2 | posted by: anna | 3.02.2010 | 20:13:48 | [+] |

Hæ,
Djö... ertu dugleg - verð að prófa þetta. Hvernig er framstig+uppstig+afturstig æfingin?
baráttukveðjur!

Nr. 3 | posted by: Maria | 3.02.2010 | 20:54:58 | [+] |

Tjah, þegar ég kom heim leið mér eins og það "vantaði" eitthvað, svo ég var að finna nýtt prógram til að ýta frá mér tómleikatilfinningunni - enda leið mér miklu betur þegar ég var farin að djöflast.

Ég verð að fá að svara spurningunni þegar ég veit það betur sjálf, þetta er í "þróun" ennþá nerd

Nr. 4 | posted by: anna | 3.02.2010 | 23:00:58 | [+] |

Þú kemur stöðugt á óvart Anna!

Myndi veðja á að þú massaðir þessu eins og öðrum áskorunum.

Nr. 5 | posted by: rato | 3.02.2010 | 23:37:26 | [+] |

Anna klikkar ekki á þessu frekar en öðru!

Nr. 6 | posted by: Edda | 4.02.2010 | 8:38:50 | [+] |

Sæl Anna, til hamingju með árangurinn og þrautsegjuna!! Ég sá þig í fréttablaðinu og fannst þetta alveg brilliant, semsagt migl langar að prófa!! Ég er samt ekki alveg að ná þessu 100 á hundrað dögum þó ég játi að ég sé búin að glugga í gegn um þetta hjá þér.... hm vona að ungfrú ókunnug hafi mátt það embarassed allavega, á ég þá að byrja bara á einu froska stökki á dag, svo tveimur næsta dag, þremur þriðja daginn osfrv eða hvað?
mbk Harpa skarpa

Nr. 7 | posted by: Harpa Rut Harðardóttir | 14.02.2010 | 0:38:41 | [+] |

Hárrétt hjá þér Harpa! Þú byrjar á að taka eitt froskahopp fyrsta daginn næstu 99 daga bætir þú svo við einu á dag þannig að á degi 100 tekurðu 100 froskahopp - með armbeygju og hala wink

Byrjar auðvelt en verður erfiðara og erfiðara.

Nr. 8 | posted by: anna | 14.02.2010 | 2:04:37 | [+] |

Takk fyrir þetta, hrikalega spennandi er byrjuð af krafti happy , 100 dagar frá og með 13 feb svo nú er það skrásett!!

Nr. 9 | posted by: Harpa Rut Harðardóttir | 14.02.2010 | 22:53:50 | [+] |

Frábært hjá þér! Láttu mig endilega vita hvernig gengur! smile

Nr. 10 | posted by: anna | 14.02.2010 | 22:58:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web