Hefurðu einhvertíma fengið á tilfinninguna að það sé eitthvað búið að gerast - eða að gerast - og það færir þér vellíðan, en þú veist ekki alveg hvað það er?
Kannski! En ég átti líka verulega góðan morgun - og gærkvöld
Nr. 2 | posted by: anna |
16.02.2010 | 14:17:19 | [+] |
Ég er meira í pakkanum að vera hálfstressuð og trekkt án þess að vita yfir hverju. Þjáist samt ekki beint, bara svona óþægilega kitlandi fiðrildi sem ég veit ekki hvers vegna er í mér. En jú, kannast líka við hitt.
Humm, ég VEIT að það er eitt ógeðslega spennandi bráðum að fara að gerast og er gjörsamlega algjörlega og alveg að farast úr spenning! Þetta er svakaleg líðan sérstakleg þar sem ég veit EKKI hver niðurstaðan verður!