Sunnudagur, 28. febrúar 2010
Anna: Veistu hvað maður þarf að gera til að hætta að gera sömu mistökin aftur og aftur?
anna.is: Öööööö ... læra af þeim?
Anna: Nei, það er skref númer tvö. Fyrsta skrefið er að finna út nákvæmlega hvar mistökin liggja. Þegar þú ert búin að því, þá geturðu lært af þeim.
anna.is: Stundum minnirðu mig á Yoda.
Anna: Ertu að segja að ég sé með stór eyru?
anna.is: Nei ég er að segja að þú sért grænn, loðin dvergur.
Anna: Þannig.
anna.is: Ætlarðu ekki að birta hitt?
Anna: Nei.
anna.is: En það er miklu meira djúsí.
Anna: Ég veit.
anna.is: Ég þoli ekki þegar þú birtir ekki stöff sem þig langar að birta - af tillitssemi við fólk sem á litla tillitssemi skilið.
Anna: Ég þoli það stundum ekki heldur, þetta er oft það fyndasta sem ég skrifa. En það er húmor á kostnað annarra og þó sumir eigi litla tillitssemi skilið þurfa þeir samt á henni að halda.
anna.is: Booooring.
Anna: Mikið er gott að þú ert ég, en ekki öfugt.
anna.is: Hvenær ætlarðu að raka á mér fótleggina næst?
Anna: Þegar ég hef ástæðu til þess - eða þegar það er búið að ganga frá Icesave.
anna.is: Awww
Anna: Já, eins gott að Alan verði kátur.
anna.is: Seriously, ég er ekki að djóka með fótleggina á mér, og fleiri staði. Hvað ef George Clooney bankar uppá? Þá verður of seint að gera ráðstafanir!
Anna: Áttu von á George Clooney?
anna.is: Miðað við það sem er búið að banka uppá hjá þér undanfarið þá á ég alveg eins von á honum.
Anna: Þú færð massa dekurdag áður en við förum til Hollands.
anna.is: Þú lofar.
Anna: Plús hárlitun og klippingu. The whole nine yards.
anna.is: Solid.
anna.is: Wait a minute.. hvað er að gerast í Hollandi?
anna.is: Halló?