Sunnudagur, 07. febrúar 2010

Miðað við þetta er ég er að léttast of hratt svo ég er farin að leggja áherslu á að borða meira - því mig langar ekki að hætta að hreyfa mig en mig langar ekki að enda eins og Gunna stöng heldur. Það verður reyndar að taka inní þessar þyngdartölur að "gráa" myndin eru tölur rétt eftir jólin og reykta matinn, svo slatti af þessu er sennilega bara vökvasöfnun af viðbjóðsmat.
Ég finn að ég er að styrkjast og í dag fékk ég engar harðsperrur eftir Esjuferðina í gær, síðasta sunndag leið mér eins og lest hafi keyrt yfir mig á sunnudeginum - en þá dansaði ég líka eins og brjálæðingur allt kvöldið á háum hælum. Kannski spilaði það inní.
Til gamans læt ég fyrstu myndina fljóta með, sem eru tæplega árs gamlar tölur. Þegar ég fór að skoða þá mynd sé ég að ég hef misst slatta af cm á þessum tíma. Ég er ekki í megrun, borða allt sem mig langar til að borða, hef hætt að drekka kók daglega, borða frekar lítið af sælgæti en sæki meira í það sem telst sennilega hollur matur og ég er byrjuð að hreyfa mig. Ég borða ekki fæðubótarefni og engar megrunartöflur. Ég tek fjölvítamín og lýsi. Og mér líður miklu betur en mér leið þegar ég birti fyrstu tölurnar, á allan hátt.
Hvernig verð ég orðin 05.05.2010?